Ægir - 01.01.1979, Blaðsíða 41
ráðherra og ríkisstjórn. að beitt verði eftirfarandi að-
gerðum:
1. Samningar við erlendar þjóðir.
Þingið telur að nú þegar eigi. að segja upp öllum
samningum um veiðiheimildir annarra þjóða í fiskveiði-
landhelginni. Ennfremur ályktar þingið að nota beri
heimild laga um 200 sjómílur milli .lan Mayen og íslands
og að fyllstu hagsmuna íslands sé gætt á Rockall haf-
svæðinu.
2. Veiðitakmarkanir á þorski.
a) Hámarksafli:
Á árinú 1979 skal hámarksafli þorsks takmarkast \ ið
280 þús. tonn.
b) Togveiðar:
Á tímabilinu 10. maí til 30. september má þorskur
í hverjum þremur veiðiferðum togskipa eigi nema
meiru en einum þriðja hluta aflans. Ef um frávik frá
þessari reglu er að ræða. þá má þorskafli þó ekki verða
hærra hlutfall fyrir tímabilið í heild.
c) Veiðibann:
Veiðitakmarkanir á þorski verði með sama hætti um
páska og var á síðasta ári.
3. Humarveiðar.
Það ástand virðist vera að skapast á humarveiðum.
að hlutur smáhumars fari vaxandi ár frá ári. Þingið telur
þ\í rétt að auka eftirlit með veiðunum t.d. með því að
hafa eftirlitsmenn í bátum og hafi þeir vald til að loka
svæðunr fyrirvaralaust um tiltekinn tima. ef um óeðli-
lega mikinn smáhumar er að ræða. Þingið telur að þetta
sé eina leiðin til að koma í veg fyrir að þeir atburðir
endurtaki sig er áttu sér stað s.l. sumar þegar óhemju
magni af smáhumri var mokað i sjóinn með ófyrirsjáan-
legunr afleiðingum varðandi framhald þessara veiða.
Þingið telur að einnig komi til greina að veiða ákveðið
magn á hverju veiðisvæði og loka því síðan.
4. Rækjuveiðar.
Þingið telur að leggja beri aukna áherslu á leit að
rækjumiðum og tilraunir með veiðar á úthafsrækju og vill
' því sambandi m.a. benda á rækjuleit á djúpslóð undan
Suðurlandi."
Miðlun hráefnis milli vinnslu-
stöðva
37. Fiskiþi ng felur stjórn Fiskifélagsins að kanna með
hvaða hætti mætti stofna til upplýsingamiðstöðvar sem
annast gæti fyrirgreiðslu við dreifingu hráefnis meðal
vtnnsluaðila. þegar hráefnisframboð er umfram afkasta-
getu á tilteknum stað eða svæði. í þessu skyni skal
stjornin leita samstarfs við fulltrúa útgerðar, sjómanna
°g vinnsluaðila um nánari framkvæmd og skipulag
slíkrar upplýsingaþjónustu. Stefnt skal að því að niður-
stöður liggi fyrir sem fvrst og eigi síðar en I. maí 1979.
Fiskiþing telur að með þessum aðgerðum og verulegum
endurbótum í vegagerð á milli staða sem eru afskiptir
í samgöngum og m.a. þar af leiðandi eiga við hráefnis-
skort að stríða, megi bæta hlut þeirra. án þess að stofna
til ríkisútgerðar togara, sem þingið teiur varhugaverða.
Flutningur hráefnis
37. Fiskiþing beinir til Alþingis og ríkisstjórnar. að
eins fljótt og kostur er verði gerðar vegabætur milli
útgerðar- og vinnslustaða, þar sem öruggar samgöngur
eru mikih ægur þáttur þeirrar viðleitni að samhæfa veiðar
og \ innslu og að tryggja vinnslu fiskafla eins fljótt eftir
löndun og frekast má verða.
Tillögur til stjórnar Fiskifélags
íslands
37. Fiskiþing samþykkir að vísa eftirfarandi tillögum
til athugunar og aðgerða stjórnar Fiskifélagsins:
a) Frá fiskdeild Austfirðinga:
1. Tillögum um hvenær síldveiðar hefjist að hausti,
verðlagningu úrgangssíldar í bræðslu og gæðamati á
síld.
2. Tillögu um aukið eftirlit með veiðum í ýmis veiðar-
færi. þar sem mikil hætta er talin vera á óhóflegu
seiðadrápi.
3. Tillögu um bann við sandsílaveiðum.
4. Tillögu um nýtingu kolastofnsins og möskvastærð
í dragnót.
5. Tillögu um grásleppuveiðar.
b) Frá fiskideild Sunnlendinga:
1. Tillögu um fjölgun eftirlitsmanna sjávarútvegs-
ráðuneytisins um borð í fiskiskipum og að þetta eftir-
lit nái til fleiri veiða. t.d. spærlings- og humarveiða.
2. Tillögu er varðar endurskoðun ákvæða um dýptar-
mörk spærlingsveiða.
3. Tillögu um að það friðunarsvæði á Selvogsbanka
sem nefnt er ..Frímerkið" verði óbreytt, en togveiðar
verði bannaðar utan þess allt út á fiskveiðiland-
helgismörk.
4. Tillögu um að togveiðar verði bannaðar frá ára-
mótum til 15. maí á svæði frá 22. lengdarbaug að
Þjórsárósum. 10 mílur frá landi, enda er slíkt bann
forsenda þess að línuveiðar megi stunda með árangri
á þessu svæði.
5. Tillögu um að tekin verði upp kvótaskipting milli
báta á reknetum. Þá verði einnig tekið til athugunar
hvort ekki ætti að breyta núverandi ákvæðum um
kvótaskiptingu herpinótaveiða og fyrirkomulagi
þeirra veiða.
ÆGIR — 29