Ægir - 01.01.1979, Qupperneq 32
svæðum er þessu þveröfugt farið og á það m.a. við um
landshluta þar sem mest framboð er á vinnuafli og
þjónustugreinarnar fjölmennasta eins og á Suðvestur-
landi. Fjöldi annarra atriða grípur inn í þetta mál, svo
sem heildarframboð á vinnuafli í landinu miðað við eftir-
spurn, húsnæðismál og framkvæmd félagslegrar þjónustu
í hinum ýmsu landshlutum og fleira.
Þótt markaðsmál hafi verið hér til unrræðu undir
öðrum dagskrárlið. langar mig til að fara örfáum orðum
urn markaðsmál freðfisks með tilliti til framleiðslu-
aukningar.
Markaðsmál
Eins og kunnugt er. fer yfirgnæfandi meirihluti fram-
leiðslu okkar í dag til tveggja landa, Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna. Á fyrrnefnda markaðinum höfum við
komið okkur upp sterkri aðstöðu, sem fólgin er í fyrir-
tækjum í okkar eigu, sem framleiða úr íslenskum fiski
og hafa sölunet. sem spannar yfir allt þetta víðlenda
og fjölmenna ríki. Fisknevsla í Bandaríkjunum er þó
tiltölulega lítil á íbúa og algjör óvissa hvort hún eykst
að marki í nánustu framtíð. Það hlýtur m.a. að fara eftir
því hvernig fiskur stendur í verð- og gæðasamkeppni
við aðrar fæðutegundir.
En hvort sem neyslan vex eða ekki, geta aðrir af-
drifaríkir þættir komið inní myndina.
Útfærsla fiskveiðilögsögu í 200 sjómílur í þcssum heims-
hluta er þar sennilega veigamest. Vera kann að Banda-
ríkjamenn sjálfir auki til rnuna fiskveiðar og fiskvinnslu
og við höfum hér á þinginu heyrt um stórfelldar áætlanir
Kanadamanna í sömu átt. Þetta kann að þýða verulega
harðnandi samkeppni á þessum markaði og torveldað
söluaukningu á íslenskum fiski.
Kaup Sovétmanna á fiski héðan eru háð ákvörðun
stjórnvalda á hverjum tíma. Þótt e.t.v. megi búast
við aukinni fiskþörf þar í landi i náinni framtíð, vegna
samdráttar í eigin afla sökum stækkaðrar fiskveiðilög-
sögu ýmissa þjóða. er engan veginn víst. að því yrði
mætt með auknum innflutningi. Þá er heldur ekki víst
að þeim kaupum yrði beint til fslands þó af þeim yrði.
Með tillliti til þess er að framan greinir. virðist nokkuð
augljóst, að allbrýn þörf er á að unnið sé að öflun nýrra
markaða. En slíkt tekur langan tíma. ef um það á að
muna, því í flestum tilvikum þurfa að koma til breyttar
neysluvenjur fólks. Freðfiskur er lika vara, sem er erfið
í flutningi og krefst sérstaks og fullkomins dreifingar-
kerfis. Þetta er líka dýr vara. sem aðeins þjóðir með
verulega kaupgetu geta veitt sér.
En við skulum vona. að allir aðilar þessa rnáls vinni
að framgangi þess af dugnaði og framsýni á komandi
tímum. svo að auknir framleiðslumöguleikar okkar rnegi
nýtast sem best til hagsbóta fyrir land og lýð.
Hilmar Rósmundsson:
Afkoma
útgerðarinnar
Þegar fiskimálastjóri fór
þess á leit við mig að ég
tæki að nrér framsögu um af-
komu útgerðarinnar. færðist
ég undan í fyrstu. þarsem ég
tel migekki hafa næga þekk-
ingu á þessum málum í hin-
um ýmsu landshlutum, en
þegar hann gat þess að
framsagan væri fvrst og
fremst til þess að opna uni-
ræður unr málið og þar seni
ég vissi að hér væru margir
sem gætu rætt þetta af reynslu og þekkingu. lét ég til
leiðast.
Þegar svo kemur i Ijós. að hér fvrir framan okkur liggur
heil bók um útgerð og afkomu fiskiskipaflotans. á árinu
1977. unnin af hagdeild Fiskifélagsins. er strax óhætt að
fullyrða að ég get engu þar um bætt. Hins vegar verð
ég að viðurkenna að mér gekk illa að átta mig á þessum
skýrslum. Þar eru þó nokkur orð sem ég alls ekki skil.
þannig að allt fór úr samhengi og þarf eflaust einhverja
bókhaldsþekkingu til þess að átta sig á þessunr tölvuunnu
töflum til fulls.
Á ársfundi L.Í.Ú., sem haldinn var í s.l. vikur. ræddi
formaður samtakanna þessi mál all ítarlega. sem hans var
von og vísa. Þar kernur franr að þegar fiskiskipaflot-
anum hafði verið skipt í fjóra flokka eftir stærð og
veiðiaðferðum, eru þrír flokkanna reknir með halla, en
sá fjórði skilar nokkrum tekjuafgangi. Heildarútkoman á
s.l. ári verður aftur á móti sú. að um einn og hálfan
milljarð króna vantar til þess að endar nái saman. Sé litið
á afkomu þessa árs. þá kemur í ljós. að hvað skipaflokk-
ana varðar. þá er heildarútkoman svipuð og á s.l. ári. en
nú er heildarrekstrarhallinn miðað við október-skilyrði
orðinn að minnsta kosti helmingi meiri en á árinu 1977.
þrátt fyrir svipaðan heildarafla. Af þessu er ljóst.
að meðalskilyrði til rekstrar fiskiskipa hafa stórum versn-
að á umræddu timabili. Að mínu mati liggja til þessýmsar
samverkandi orsakir. þó nokkuð breytilegar, eftir því
hvers konar skip er átt við. Ég mun í þessu stutta erindi
mínu reynda að gera grein fyrir hverjar ég tel höfuðor-
20 — ÆGIR