Ægir - 01.01.1979, Qupperneq 42
c) Frá fiskideild Norlendinga:
Tillögu um að komið verði á fljótvirkari aðgerðum í
sambandi við lokun og opnun veiðisvæða, þar sem
smáfiskur er.
d) Frá fiskideild Vestmannaeyja:
1. Tillögu um að veiðar í Fláfadýpi með mjög smá-
riðnum vörpum, svo sem spærlingsvörpum, verði
aðeins leyfðar á tímabilinu 1. sept. til 31. des., ár hvert.
2. Tillögu um að humarveiðar í Fláfadýpi verði kann-
aðar utan við 110 faðma dýpi.
e) Frá fjórmenningunum, Þorsteini Jóhannessyni, Flerði
Þórhallssyni. Ingólfi Falssyni og Magnúsi Magnús-
syni:
Tillögu um stofnun flutningssjóðs vegna síldveiða.
f) Frá Þorsteini Jóhannessyni:
Tillögu um að til aðstoðar loðnuveiðiflotanum verði
stöðugt tvö skip á sumar- og haustveiðum norður í
hafi.
Aflatryggingasjóður
37. Fiskiþing ítrekar fyrri samþykktir sínar um endur-
skoðun á reglum Aflatryggingasjóðs og skorar á stjórn
sjóðsins að hraða henni eins og kostur er. Leggur þingið
áherslu á, að bótatímabilum sjóðsins verði breytt til sam-
ræmis við gildandi kjarasamninga sjómanna og útvegs-
manna.
Fiskiþing lýsir stuðningi sínum við framkomnar hug-
mvndir um, að grásleppuveiðar njóti sömu réttinda og
aðrar veiðar gagnvart Aflatryggingarsjóði og áhafna-
deild hans, enda séu greidd sömu gjöld til sjóðsins af
grásleppuafurðum. eins og greidd eru af útflutningi
annarra sjávarafurða.
Afkoma útgerðarinnar
Framhald af bls. 21
í ræðu og riti að íslenski fiskiskipaflotinn sé orðinn
allt of stór. Þetta er rétt að því leyti að veiðigeta
hans er of mikil miðað við ástand fiskstofnanna í dag.
En hvað er dýrmætara þjóð, sem á nær allt undir svik-
ulum sjávarafla. en að eiga góð tæki til fanga? Það er
nauðsynlegt að eiga góðan fiskiskipaflota þó að hjá því
verði ekki komist að draga verulega úr sókn hans í
viðkvæmustu fiskstofnana meðan þeir eru að ná sér. Ég
er hinsvegar alveg sammála Kristjáni Ragnarssyni í því
að skip. sem smíðuð yrðu nú, er algerlega útilokað að
reka á eðlilegan hátt. Það er hreint ábyrgðarleysi að láta
byggja 30 tonna bát, sem kostar 100 milljónir, eða skut-
togara á I til 2 milljarða og væri það verðugt verkefni
þessa Fiskiþings að leggja til að slíkt ætti sér ekki stað.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð mín fleiri, en hafi ég gert
mér rangar hugmyndir um afkomu einhvers hluta flotans,
óska ég leiðréttingar á þeim og legg til að málinu verði
vísað til sjávarútvegsnefndar.
ÍSUNZKT SJDMANNA-
ALMANAK1979
t
I»AU HAFA REYMST STEKKBYCKO
OG AFLASÆL SKII'IM FRÁ
UDYMIA SKII'ASMÍDASTÖDIJVMI
GUNNAR FRIÐRIKSSON — VELASALAN
Garðastræti 6 — Reykjavík — Simi 15401
Sjómanna
almanakið 1979
er komið út
Fcest á skrifstofu
félagsins.
Sent gegn póstkröfu
FISKIFÉLAG ÍSLANDS
HÖFN, INGÓLFSSTRÆTI
30 — ÆGIR