Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1979, Side 55

Ægir - 01.11.1979, Side 55
Rafkerfi er 3x220 V riðstraumur, enjafnframt er í skipinu jafnstraumskerfi vegna lögboðinnar neyðarlýsingar og talstöðvar. Einnig er í skipinu búnaður til landtengingar við 3x220 V riðstraum. 1 il að hita upp vistarverur er vatnsmiðstöð, sem f*r varma frá olíukyntri eldavél í íbúðarrými. Til upphitunar á neyzluvatni er rafknúinn hitakútur frá Ignis, 30 1, með 1200 W hitaelimenti. Til lestarkælingar er ein kælivél frá Bitzer, gerð 6L, afköst 1860 kcal/klst. Kælivélin er knúin af 1.5 ha rafmótor og er henni komið fyrir í aðgerðarrými, kælimiðill er Freon 12. Aðgerðarrými og fiskilest: Vökvaknúin fiskilúga er framan við skutrennu, sem veitir aðgang að fiskimóttöku. Framan við fiskimóttöku er aðgerðarborð, og við hliðina á því slógrör með vatnsþéttu loki. Slógrörið liggur niður úr siðu skipsins b.b.-megin. Aðgerðarrýmið er einangrað með 75 mm gosull og klætt með vatnsþéttum krossviði. Milli aðgerðarrýmis og fiskilestar er vatnsþétt hurð. Fiskilest er einangruð með polyurethan og klædd með þriggja mm stálplötum. Fyrirkomulag lestarinnar er miðað við notkun fiskkassa. í lofti lestarinnar eru kælispíralar og er miðað við að hægt sé að halda 0°C við 15°C útilofthita. Vindubúnaður, losunarbúnaður: Vindur skipsins eru vökvaknúnar (háþrýstikerfi) frá vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar hf. Sitt hvoru megin á þilfari, rétt fyrir framan toggálga, eru togvindur skipsins. Þær eru splittvindur, hvor með eina tromlu (250 mm0x 950 mm0x 500 mm) og sjálfvirku vírastýri, knúnar með vökvamótor frá Hágglund, gerð B 2165. Togátak á miðja tromlu (600 mm0) er 4.3 tonn, og tilsvarandi dráttarhraði 1 1 1 m/mín. Rétt aftan við b.b.-togvindu er hjálparvinda með einni útkúplanlegri tromlu (223 mm0x 403 mm0x 110 mm), kopp og bremsubandi. Vindan er til pokalosunar o.fl. Á milli stýrishúss og lestarlúgu er vörpuvinda (280 mm0x 411 mm0x 1520 mm0x 1570 mm). Vindan er knúin með vökvamótor frá Staffa, gerð 125. Togátak á miðja tromlu (965 mm0 ) er 1.24 tonn og tilsvarandi dráttarhraði 61 m/mín. Á losunarbómu eru tvær vindur, löndunarvinda, togátak 1 tonn, og bómuvinda, togátak 0.5 tonn. Togvindum og vörpuvindu er hægt að stjórna bæði í brú og við vindurnar. Hjálparvindu er stjórnað við vinduna, en vindum á bómu er stjórnað frá þilfari. Rafeindatæki, tæki í brú o.fl.: Ratsjá: JRC, JMA 510, 64 sm. Seguláttaviti: Lilley & Gillie, spegiláttaviti í þaki. Sjálfstýring: Wagner, MK 4. Vegmælir: Electro Magnetic EMY. Loran: Micrologic ML-220. Dýptarmælir: JRC, NJA 840 með fisksjá og tveim botnspeglum. Asdik: Wesmar 230. Talstöð: Dancom RT 101, 200W SSB. Örbylgjustöð: Dancom RT 408, 25W. Sjóhitamælir: Örtölvutækni. Auk ofangreindra tækja má nefna vörð frá Baldri Bjarnasyni, og örbylgjuleitara frá Regency. Af öryggis- og björgunarbúnaði má nefna einn 8 manna gúmmíbjörgunarbát frá RFD, neyðartal- stöð frá Callbuoy og Simrad neyðarbauju. ÆGIR — 683

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.