Ægir - 01.11.1979, Side 57
LÖG OG REGLUGERÐIR
Reglugerð
Reglugerð
utn takmarkanir á þorskveiðum íslenskra skipa í
nóvember og desember 1979.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur í dag gefið út reglu-
gerð um takmarkanir á þorskveiðum í nóvember og
desember í ár. Verður hér á eftir gerð grein fyrir
helstu ákvæðum reglugerðar þessarar.
1. Bátum öðrum en skuttogurum með 900 hest-
afla vél og stærri og togskipum, sem eru 39
metrar og lengri, er óheimilt að stunda þorsk-
veiðar tímabilið 20. desember til 31. desem-
ber 1979, að báðum dögum meðtöldum.
2. Skuttogurum með 900 hestafla vél og stærri
og togskipum 39 metra og lengri er óheimilt
að stunda þorskveiðar í 23 daga á tímabilinu
1. nóvember til 31. desember 1979.
Útgerðaraðilar þessara skipa geta ráðið til-
högun veiðitakmörkunar, en þó skal hver
togari ætíð láta af þorskveiðum í a.m.k. sjö
daga í senn. Skulu útgerðaraðilar tilkynna
ráðuneytinu um tilhögun veiðitakmörkunar
áður en hún hefst hverju sinni. Eru útgerðar-
aðilar bundnir við áætlanir sínar og verði þær
ekki látnar í té, getur ráðuneytið ákveðið,
hvenær togarar láta af þorskveiðum.
3. Upphaf takmörkunartímabils miðast við
þann tíma, er togari kemur i höfn til löndun-
ar, en lok timabilsins, miðast við þann tíma
er togari heldur til þorskveiða á ný.
Sigli togari með afla til löndunar erlendis og
reynist þorskur yfir 15% af heildarafla, telst
sá tími er fer í siglingar ekki með í tímabili
veiðitakmörkunar á þorski.
4. Á þeim tíma, sem fiskiskip mega ekki stunda
þorskveiðar má hlutdeild þorsks í heildarafla
hverrar veiðiferðar ekki nema meiru en 15%.
Þorskafli undir þeim mörkum skoðast sem
löglegur aukaafli, en fari þorskafli hverrar
veiðiferðar fram úr 15% af heildarafla, verður
það sem umfram er, gert upptækt samkvæmt
lögum um upptöku ólöglegs sjávarafla.
Sjávarútvegsráðuneytið,
23. október 1979.
um sérstakt línu- og netasvæði út af Faxaflóa.
1. gr.
Frá 1. nóvember 1979 til 15. maí 1980, að báðum dög-
um meðtöldum, eru allar veiðar með botn- og flot-
vörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem að
sunnan markast af línu, sem dregin er réttvísandi
vestur frá Sandgerðisvita, að vestan markast svæðið
af 23°42’0 V og að norðan af 64°20’0 N.
2. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða refsingu sam-
kvæmt lögum nr. 81 31. maí 1976, um veiðar í fisk-
veiðilandhelgi íslands. Með mál út af brotum, skal
farið að hætti opinberra mála.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 81
31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi íslands
til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni
öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegsráðuneytið,
25. október 1979.
F.h.r.
Jón L. Arnalds.
ÆGIR — 685