Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1982, Síða 18

Ægir - 01.01.1982, Síða 18
Jón G. Stefánsson: Stjórnun fiskveiða Þingforseti. Góðir Fiski- þingsfulltrúar. Það hefir komið í minn hlut að hafa hér framsögu um stjórnun fiskveiða, en ef að líkum lætur má gera ráð fyrir að umræður um þennan málaflokk taki drjúgan hluta af fundartima þessa Fiskiþings. Allt fram á seinasta áratug var nánast um að ræða óheftan aðgang að fiskimiðunum umhverfis landið. Síðan hafa af- skipti stjórnvalda af fiskveiðum okkar aukizt svo mjög, að nú er með réttu hægt að segja, að allar veiðar séu á einn eða annan hátt háðar afskiptum stjórnvalda. Það er því vissulega ómaksins vert að gera tilraun til að virða fyrir sér þróun þessara mála seinustu árin og hvaða áhrif þær stjórnvalds- aðgerðir, sem beitt hefir verið, hafa haft á atvinnu- veginn í heild og einstaka greinar hans. Við stjórnun fiskveiða getur verið um að ræða tvær leiðir: 1. Svo nefnda fjárhags- eða verðlagsaðferð, þ.e. að selja mönnum með einum eða öðrum hætti aðgang að fiskimiðunum í formi auðlinda- skatts eða með sölu veiðileyfa. 2. Beinar takmarkanir til að draga úr eða tak- marka sóknina í ákveðna fiskstofna. Allir þeir ráðherrar, sem farið hafa með stjórn þessara mála síðan afskipti stjórnvalda af þessum málum hófust um miðjan 7. áratuginn, hafa valið siðari kostinn. Er það í sjálfu sér ekki óeðlilegt, þar sem það hefir verið stefna allra hagsmunasam- taka sjávarútvegsins, sem um þessi mál hafa fjall- að. Nokkrar deilur hafa aftur á móti staðið um út- færslu þessara takmarkana á hverjum tíma, sem er í sjálfu sér ekki óeðlilegt, þegar þess er gætt, hversu gífulega þýðingu þær reglur geta haft fyrir þróun atvinnugreinarinnar í heild, útgerðar, vinnslugreina og einstakra byggðalaga. Fiskveiðistjórnin hefir í aðalatriðum verið tví- þætt: 1. að draga úr sókninni i ofnýtta stofna og 2. að beina sóknarmættinum að þeim stofnum, sem taldir hafa verið vannýttir á hverjum tíma. Það hefir verið grunntónn í tillögum Fiskiþinga á liðnum árum, að miða sóknina við æskilega uppbyggingu fiskstofnanna og samræma þetta eðlilegum rekstri útgerðar og fiskvinnslu, þannig að þeir, sem í þessum atvinnugreinum starfa, hefðu örugga atvinnu allt árið og viðundandi lifs- afkomu. Tillögur Fiskiþinga hafa ekki miðast við það eitt, að takmarka sóknina við ákveðið afla- mark án tillits til þessara veigamiklu atriða. Þeim takmörkunum, sem beitt hefir verið, má í aðalatriðum skipta í sjö flokka: 1. Lokun ákveðinna veiðisvæða 1.1. Lokun hrygningarsvæða. 1.2. Lokun uppeldissvæða. 1.3. Timabundnar svæðalokanir. 2. Reglur um gerð, magn og búnað veiðarfæra, t.d. möskvastærð, hámarksnetafjölda í sjó o.fl. 3. Bann við veiðum á tilteknum tímabilum. 4. Hámarksafli eða heildarkvóti fyrir afla úr stofni á vertíð eða ákveðnu timabili. 5. Hámarksafli eða kvóti á hvert veiðiskip, t.d. hringnótaveiðar á sild á haustvertíð og nú á loðnuveiðum. 6. Reglur um hámarksstærðir veiðiskipa til til- tekinna veiða. 7. Takmörkun á fjölda báta, t.d. við rækjuveið- ar á grunnslóð. Fyrstu tveir flokkarnir hafa oft verið nefndir óbeinar sóknartakmarkanir, en siðari flokkanir fimm beinar sóknartakmarkanir. Ég sé ekki ástæðu til þess hér að fjölyrða um óbeinu sóknar- takmarkanirnar, þar sem það verða fyrst og fremst síðari flokkarnir fimm, sem hér verða til umræðu. Botnfiskveiðarnar Athygli manna hefir alla tíð beinst fyrst og fremst að botnfiskveiðunum, einkanlega nýtingu þorskstofnsins. í skýrslu Hafrannsóknastofn- unarinnar um ástand nytjastofna á íslandsmiðum og aflahorfur 1981 var lagt til, að botnfiskveiðar á 6 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.