Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1982, Síða 21

Ægir - 01.01.1982, Síða 21
1-4. Frá 25. júlí til 3. ágúst, að báðum dögum meðtöldum, verði allar þorskveiðar báta bann- aðar. Þ6 nái það ekki til báta, sem eru 12 lestir eða minni og stunda línu- og handfæraveiðar. 1- 5. Frá 20. desember til 31. desember, að báðum dögum meðtöldum, verði allar þorsk- veiðar báta bannaðar. !-6. Veiðar í þorsknet verði bannaðar 15. júlí til 15. ágúst. 2. Takmarkanir á þorskveiðum togaraflotans: 2- 1. Árinu verði skipt í þrjú jafnlöng veiðitíma- bil og við það miðað að þorskafli fari ekki fram úr: 1. tímabil (jan.-apríl) 80 þús. t. 2. tímabil (maí-ágúst) 75 þús. t. 3. tímabil (sept.-des.) 70 þús. t. 2-2. Á árinu 1982 verði þorskveiðibann togara }50 dagar, innan eftirfarandi marka: I þorskveiðibanni skal togurum heimilt að hafa þorsk, sem hlutfall af heildarafla i hverri veiði- ferð: 5% í 40 daga 15% í 55 daga 30% i 55 daga Alls 150 daga, minnst 4 daga í senn. Þorskveiðibann skal gilda í 45 daga á fyrsta tímabili, þar af 15 daga í janúar og febrúar. Þorskveiðibann skal gilda í 60 daga á öðru tímabili, þar af 35 daga í júlí og ágúst. Þorskveiðibann skal gilda í 45 daga á þriðja tímabili. 2-3. Skipstjórar tilkynni sjávarútvegsráðuneyt- inu með skeyti þegar þeir koma til hafnar, Itversu marga daga þeir hafi verið í þorskveiði- Þanni og hve mikið af þorski sé í aflanum. Fari Þorskur fram úr viðmiðunarmörkum, verði það sem umfram er gert upptækt, eins og verið hefur. 2-4. Skili skipstjórar ekki þeim dagafjölda sem akveðinn er í þorskveiðibanni hvert tímabil, tvöfaldast sá dagafjöldi sem ekki var tekinn og hætist við næsta timabil hjá viðkomandi skipi. 2.5. Verði þorskafli togara hvers timabils veru- lega meiri en viðmiðunarmörk segja til um, skal veiðibannsdögum fjölgað, en verði hann veru- lega minni, skal þeim fækkað, þannig að heild- araflinn verði sem næst því sem að er stefnt fyrir tímabilin tvö. 2.6. 40. Fiskiþing leggur til að því verði komið á framfæri við sjávarútvegsráðuneytið, að ekki verði leyft að hefja síldveiðar fyrr en síldin er orðin markaðshæf vara. Milliþinganefnd um fiskveiðistefnu 40. Fiskiþing samþykkir að kjósa milliþinga- nefnd, til þess að kanna hvort hagkvæmt þykir og vilji er til að taka upp kvótafyrirkomulag á fisk- veiðum 1983, í stað þess skipulags, sem nú er lagt til að verði 1982. Nefndin kynni sér viðhorf í hinum ýmsu lands- hlutum og útgerðarstöðum og kanni mismunandi aðferðir. Nefndin miði störf sín við að kynna tillögur sin- ar á fjórðungsþingum fiskideildanna næsta haust. Nefndin verði þannig skipuð: 1. Fiskimálastjóri verði formaður. 2.-7. Fiskiþingsfulltrúar hvers fjórðungssam- bands fiskideilda tilnefni einn mann í nefnd- ina fyrir sitt svæði. 8. Einn tilnefndur af Farmanna- og fiski- mannasambandi íslands. 9. Einn tilnefndur af Sjómannasambandi ís- lands. 10. Einn tilnefndur af Landssambandi ísl. út- vegsmanna. 11. Einn tilnefndur af Félagi ísl. botnvörpu- skipaeigenda. 12. Einn tilnefndur af samtökum frystingar. 13. Einn tilnefndur af samtökum saltfisks- og skreiðarframleiðenda. ÆGIR — 9

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.