Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1982, Blaðsíða 26

Ægir - 01.01.1982, Blaðsíða 26
þeirra. Ef slík mynd er í smíðum eða búin og ekki er í henni hinn nýi sjósetningarbúnaður, sem uppfundinn er af Sigmund Jóhannssyni verði honum bætt í hana. Fyrr telur Fiski- þing slíka kvikmynd ekki fullkomna. 5. Að brýnt verði fyrir skipstjórnarmönnum að koma með skipshafnir sínar á þá staði sem gúmmíbjörgunarbátar eru skoðaðir og kynna þeim þar búnað þeirra og mikilvægi. Að lokinni skoðun hverju sinni skal skoðun- armaður fylgjast með frágangi bátanna um borð í skipunum. Einnig skorar Fiskiþing enn á ný á skip- stjórnarmenn að þeir kynni mönnum sínum notkun björgunar- og öryggisbúnaðar þess sem er um borð í skipum þeirra og sjái um að hann verði notaður. 6. Að felld verði niður öll gjöld og tollar af tækjum og öðrum búnaði sem björgunar- og hjálparsveitir nota við björgunarstörf sín. 7. Að stjórn Fiskifélags íslands beiti sér fyrir því við stjórnvöld að löggæsla í sjávarpláss- um verði ekki rýrð svo sem nú er gert seinni part nætur. Vísast til greinargerðar við 7. lið um öryggis- mál frá Fiskideild Vestmannaeyja. 8. Að strax verði fært inn á sjókort grynningar og sker, sem eru við Maríuhlið, ca. 10 sml. vestan við Dyrhólaey og m/b Sigurbára VE strandaði á s.l. vetur. 9. 40. Fiskiþing varar alvarlega við sjósókn, þar sem einn maður er á bát. 10. Að lögskipa skuli að hástokkur og þak á stýrishúsi smábáta verði málað í orange gulum lit. Að endurskinsmerki verði fyrirskipuð á smá- bátum. Að nauðsynlegt sé að menn noti öryggisbelti og liflínu þar sem einn eða tveir menn eru á bát. 11. Að skora á samgönguráðherra að gera eins fljótt og frekast er hægt hina nýju vitanefnd starfhæfa, svo hún geti hafið störf, sem full þörf virðist á. 12. Að minna á að ekki er enn kominn renniloki á alla skuttogara í netarennunni og skorar þingið á siglingarmálastjóra að hrinda því máli í framkvæmd. 13. Enn minnir Fiskiþing á þann vanda, sem er við að komast að og frá borði á bátum og skipum í ýmsum höfnum landsins, ennfrem- ur telur þingið að stórauka þurfi gæslu margra hafnarsvæða þar sem erfiðast er í þessum málum. Skorar 40. Fiskiþing á hafn- arstjórnir að bæta aðstöðu báta í höfnum, svo sem með flotbryggjum. 14. Fiskiþing skorar á samgönguráðherra og siglingamálastjóra að vinna að því, að í framtíðinni verði fyrirskipað að ljós verði á öllum björgunarbeltum, sem notuð eru í íslenskum skipum. 15. Skorað er á siglingamálastjóra að birta opin- berlega efni þeirra reglugerða, sem Alþjóða- siglingamálastofnunin hefur samþykkt, en íslenska ríkisstjórnin ekki samþykkt enn sem komið er. 16. Skorað er á samgönguráðherra, að banna nú þegar að neyðarsendar sem ekki hafa hlotið viðurkenningu Pósts- og símamálastofnun- ar, verði settir í gúmmíbjörgunarbáta. 17. Að beina þeirri ósk til samgönguráðherra, að hann feli tæknideild pósts og sima að fylgj- ast með nýrri þróun á hlustunar- og staðar- ákvörðurarkerfi á flugvélatíðni 121,5 og 243 MHz, sem Bandaríkin, Kanada og Frakk- land eru að koma sér upp i sameiningu, og á að taka til starfa á árinu 1982, eða svonefnt SARSAT kerfi. Einnig feli hann sömu aðil- um að kanna hvort ekki væri hentugt fyrir okkur íslendinga að gerast aðilar að um- ræddu kerfi. 18. 40. Fiskiþing lýsir óánægju sinni yfir hvað mörg góð mál, sem varða öryggi sjómanna virðast stranda hjá Siglingamálastofnun og Vita- og hafnarmálastofnun og hafa oft ver- ið þar í geymslu svo árum skiptir. Fiskiþing telur að Siglingamálastofnunin eigi að vera hvetjandi stofnun um öryggismál, en ekki eins og verið hefur að tillögur um öryggismál sjómanna sem komið hafa fram frá hags- munasamtökum í sjávarútvegi, svo sem út- gerðarmönnum og sjómönnum, hafa ekki fengið þá meðferð hjá Siglingamálastofnun- inni sem vænta hefði mátt og skorar á sigl- ingamálastjóra að breyta starfsháttum stofn- unarinnar til betri vegar. 14 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.