Ægir - 01.01.1982, Qupperneq 26
þeirra. Ef slík mynd er í smíðum eða búin og
ekki er í henni hinn nýi sjósetningarbúnaður,
sem uppfundinn er af Sigmund Jóhannssyni
verði honum bætt í hana. Fyrr telur Fiski-
þing slíka kvikmynd ekki fullkomna.
5. Að brýnt verði fyrir skipstjórnarmönnum að
koma með skipshafnir sínar á þá staði sem
gúmmíbjörgunarbátar eru skoðaðir og
kynna þeim þar búnað þeirra og mikilvægi.
Að lokinni skoðun hverju sinni skal skoðun-
armaður fylgjast með frágangi bátanna um
borð í skipunum.
Einnig skorar Fiskiþing enn á ný á skip-
stjórnarmenn að þeir kynni mönnum sínum
notkun björgunar- og öryggisbúnaðar þess
sem er um borð í skipum þeirra og sjái um að
hann verði notaður.
6. Að felld verði niður öll gjöld og tollar af
tækjum og öðrum búnaði sem björgunar- og
hjálparsveitir nota við björgunarstörf sín.
7. Að stjórn Fiskifélags íslands beiti sér fyrir
því við stjórnvöld að löggæsla í sjávarpláss-
um verði ekki rýrð svo sem nú er gert seinni
part nætur.
Vísast til greinargerðar við 7. lið um öryggis-
mál frá Fiskideild Vestmannaeyja.
8. Að strax verði fært inn á sjókort grynningar
og sker, sem eru við Maríuhlið, ca. 10 sml.
vestan við Dyrhólaey og m/b Sigurbára VE
strandaði á s.l. vetur.
9. 40. Fiskiþing varar alvarlega við sjósókn,
þar sem einn maður er á bát.
10. Að lögskipa skuli að hástokkur og þak á
stýrishúsi smábáta verði málað í orange
gulum lit.
Að endurskinsmerki verði fyrirskipuð á smá-
bátum.
Að nauðsynlegt sé að menn noti öryggisbelti og
liflínu þar sem einn eða tveir menn eru á bát.
11. Að skora á samgönguráðherra að gera eins
fljótt og frekast er hægt hina nýju vitanefnd
starfhæfa, svo hún geti hafið störf, sem full
þörf virðist á.
12. Að minna á að ekki er enn kominn renniloki
á alla skuttogara í netarennunni og skorar
þingið á siglingarmálastjóra að hrinda því
máli í framkvæmd.
13. Enn minnir Fiskiþing á þann vanda, sem er
við að komast að og frá borði á bátum og
skipum í ýmsum höfnum landsins, ennfrem-
ur telur þingið að stórauka þurfi gæslu
margra hafnarsvæða þar sem erfiðast er í
þessum málum. Skorar 40. Fiskiþing á hafn-
arstjórnir að bæta aðstöðu báta í höfnum,
svo sem með flotbryggjum.
14. Fiskiþing skorar á samgönguráðherra og
siglingamálastjóra að vinna að því, að í
framtíðinni verði fyrirskipað að ljós verði á
öllum björgunarbeltum, sem notuð eru í
íslenskum skipum.
15. Skorað er á siglingamálastjóra að birta opin-
berlega efni þeirra reglugerða, sem Alþjóða-
siglingamálastofnunin hefur samþykkt, en
íslenska ríkisstjórnin ekki samþykkt enn sem
komið er.
16. Skorað er á samgönguráðherra, að banna nú
þegar að neyðarsendar sem ekki hafa hlotið
viðurkenningu Pósts- og símamálastofnun-
ar, verði settir í gúmmíbjörgunarbáta.
17. Að beina þeirri ósk til samgönguráðherra, að
hann feli tæknideild pósts og sima að fylgj-
ast með nýrri þróun á hlustunar- og staðar-
ákvörðurarkerfi á flugvélatíðni 121,5 og 243
MHz, sem Bandaríkin, Kanada og Frakk-
land eru að koma sér upp i sameiningu, og á
að taka til starfa á árinu 1982, eða svonefnt
SARSAT kerfi. Einnig feli hann sömu aðil-
um að kanna hvort ekki væri hentugt fyrir
okkur íslendinga að gerast aðilar að um-
ræddu kerfi.
18. 40. Fiskiþing lýsir óánægju sinni yfir hvað
mörg góð mál, sem varða öryggi sjómanna
virðast stranda hjá Siglingamálastofnun og
Vita- og hafnarmálastofnun og hafa oft ver-
ið þar í geymslu svo árum skiptir. Fiskiþing
telur að Siglingamálastofnunin eigi að vera
hvetjandi stofnun um öryggismál, en ekki
eins og verið hefur að tillögur um öryggismál
sjómanna sem komið hafa fram frá hags-
munasamtökum í sjávarútvegi, svo sem út-
gerðarmönnum og sjómönnum, hafa ekki
fengið þá meðferð hjá Siglingamálastofnun-
inni sem vænta hefði mátt og skorar á sigl-
ingamálastjóra að breyta starfsháttum stofn-
unarinnar til betri vegar.
14 — ÆGIR