Ægir - 01.01.1982, Side 31
Enginn vafi er á því að þörf er endurnýjunar í
bátaflotanum, að frátöldum loðnuskipum. Að
minu viti vegur það mest að bátafjöldinn er mjög
bominn til ára sinna. Þegar um endurnýjun báta-
flotans verður að ræða, er rétt að stemmt sé að því
nð hún eigi sér stað með nýsmíði, en ekki með
skipakaupum og áherslu eigi að leggja á smíði ver-
tíðarbáta af stærðunum 120—250 brl. sérhannaða
tyrir íslenskar aðstæður. Með hliðsjón að því meg-
mmarkmiði að flotinn eigi að minnka verður að
telja að þessa nýsmíði eigi að takmarka við hluta af
úrfalli úr bátaflotanum. Á árinu 1981 verða 462
bátar 16 ára og eldri og svarar sá fjöldi til liðlega
helmings af rúmlestastærð bátaflotans. Á hitt ber
bó að líta að í rúmlestum talið hefur um þriðjung-
Ur þessa eldri helmings bátaflotans verið verulega
endurbættur umfram venjulegt viðhald svo sem
með lengingu, yfirbyggingum og jafnvel hreinni
endurbyggingu. Eftir stendur sú staðreynd að um
bað bil þriðjungur bátaflotans, eða rúmlega 20
bús. af 60 þús. rúmlestum, er 16 ára og eldri og
hefur ekki verið verulega endurbættur, þótt hinir
emstöku bátar séu að sjálfsögðu í mjög mismun-
andi ástandi, bæði hvað varðar véla- og tækjabún-
að, aðbúnað skipshafnar og ástand almennt.
Eg held ég láti þetta nægja varðandi endurnýj-
unarspursmálið, en ég legg áherslu á það að sú
nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar fái í hend-
Ur skýrslu þessa starfshóps, en þar er mörg og
viðamikil mál að finna, sem veita allar nauðsynleg-
ar upplýsingar um umfjöllun þessa máls, auk þess
sem þar koma fram afgerandi tillögur, sem að ég
a-m.k. persónulega er í höfuðatriðum samþykkur.
Eg skal þá víkja nokkuð að Úreldingar- og Ald-
urslagasjóði.
Aldurslagasjóður. Þann 1. júlí 1978 tóku gildi
ný lög fyrir Samábyrgðina, nr. 37/1978. Sam-
kvæmt þeim var bráðafúadeild Samábyrgarinnar
'ögð niður og jafnframt stofnsettur Aldurslaga-
sjóður fiskiskipa og annast Samábyrgðin rekstur
hans. Við gildistöku hinna nýju laga yfirtók ald-
urslagasjóður allar eignir og skuldbindingar bráða-
^úadeildarinnar. Tilgangur Aldurslagasjóðsins er
aðallega að greiða fyrir því með bótagreiðslum að
gömul og óhentug fiskiskip verði tekin úr notkun
°g eyðilögð. Einnig er heimilt að veita úr sjóðnum
bætur til viðgerða á bolskemmdum af bráðafúa
eöa skyldum orsökum. Allir eigendur stálfiski-
shipa stærri en 12 brl. og D fiskiskipa með þilfari
annarra en súðbyrtra skipa eru skyldir að vera aðil-
ar að Aldurslagasjóði fiskiskipa og greiða árgjöld
til hans. Samábyrgðin f.h. Aldurslagasjóð hefur
lögveð í skipum og lögtaksrétt fyrir árgjöldum. Ár-
gjöldin eru miðuð við rúmlestatölu skips og bætur
við rúmlestatölu og aldur. Frá og með 1. jan. 1981
gilda eftirfarandi reglur um árgjöld og bætur:
„Árgjöld skulu 112 kr. á rúmlest af tréskipum
og 56 á rúmlest af stálskipum. Þó skal árgjald
ekki vera hærra en kr. 16.750 af einu skipi. Ár-
gjald endurgreiðist ekki þó skip liggi í höfn eða
standi uppi. Bætur úr Aldurslagasjóði skulu
ákveðnar af stjórn Samábyrgðar íslands á fiski-
skipum. Það er skilyrði fyrir bótum að ekki sé
lengra liðið en 12 mánuðir frá því að viðkom-
andi skipi var haldið til veiða með eðlilegum
hætti þegar óskað er bóta. Bætur vegna skipa
eldri en 15 ára skulu ekki vera hærri en kr.
3.500 á rúml. skipa. Sé skip yngra en 15 ára
hækkar hámarkið um kr. 350 á rúml. fyrir hvert
ár upp í kr. 6.200 á rúml. Bætur skulu aldrei
vera hærri en kr. 1 millj. og 50 þús. vegna eins
skips. Bætur frá tryggingafélagi og Aldurslaga-
sjóði geta aldrei orðið hærri samanlagt en vá-
tryggingarverð skipsins. Bætur vegna viðgerða
á bolskemmdum vegna bráðafúa eða skyldra
orsaka skulu aldrei fara fram úr 60% viðgerða-
kostnaðar og eigi heldur fram úr þeim fjárhæð-
um sem á undan eru nefndar. Þegar bætur eru
greiddar til þess að skip verði tekið úr notkun
skal skipseigandi sjá um að eyða bol skipsins.
Bætur verða ekki greiddar að fullu fyrr en boln-
um hefur verið eytt, vélar og tæki úr skipinu eru
eign skipseigenda."
Árgjöld á árinu í ár er áætlað að muni nema
tæplega 5,1 millj. kr.
Varðandi Úreldingarsjóðinn eru þessar upplýs-
ingar:
Þann 1. febr. 1980 gaf sjávarútvegsráðuneytið
út reglugerð um aldurslagatryggingu vegna úreltra
og óhagkvæmra fiskiskipa. Breytingar á fyrri
reglugerð voru gefnar út 23. apríl og 24. júní 1980.
Samkvæmt reglugerðinni skal 3% af útflutnings-
gjöldum og tekjum þar af varið til að stofna sér-
stakan sjóð, Úreldingarsjóð, og skal hlutverk hans
vera að styrkja útgerðaraðila til að taka úrelt og ó-
hagkvæm fiskiskip úr notkun. Heimili sjóðsins er
hjá Samábyrgð íslands á fiskiskipum, sem veitir
viðtöku umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sérstök
ÆGIR — 19