Ægir - 01.01.1982, Page 34
I. Núverandi sóknarmáttur fiskiskipaflotans er
of mikill og væri of mikill, þótt hámarksaf-
rakstri fiskstofna væri náð.
II. Sóknarmáttur flotans þarf að minnka.
III. Endurnýjunarþörf togaraflotans er lítil sem
engin.
IV. Ekki er rétt að banna með öllu smíði eða
kaup á skuttogurum, en i slíkum tilvikum
verður undantekningarlaust að selja sam-
bærilegan skuttogara úr landi.
V. Endurnýjunarþörf loðnuflotans er engin.
IV. Endurnýjunarþörf bátaflotans er talsverð.
IIV. Endurnýjun bátaflotans eigi sér stað í nýjum
vertíðarbátum af stærðunum 120—250 rúm-
lestir, en árleg endurnýjun verði þó eigi meir
en meðaltalsúrfall 2ja undanfarandi ára.
40. Fiskiþing samþykkir að sú endurnýjun á
flotanum, sem talið er brýnt að eigi sér stað, skuli
fara fram innanlands, á sambærilegu verði og
fengist erlendis. Ef smíðakostnaður innanlands
reynist hærri en erlendis, þá má sá kostnaðarauki
sem af því hlýst ekki verða vandamál útgerðar i
landinu, heldur verði það vandamál þjóðfélagsins í
heild.
Ályktun 40. Fiskiþings um
Úreldingarsjóð og Aldurslagasjóð
40. Fiskiþing samþykkir að fela stjórn Fiskifé-
lags íslands að þeita sér fyrir þvi að Aldurslaga-
sjóður og Úreldingarsjóður verði sameinaðir i einn
sterkan sjóð sem hafi það hlutverk að bæta tjón
vegna fiskiskipa sem sannanlega eru úrelt og tekin
úr notkun.
Benedikt Thorarensen:
Selveiðar
Herra forseti, góðir þing-
fulltrúar.
Það var nú heldur
stuttur fyrirvari á undir-
húningi minum að þessu
framsöguerindi, enda
kom það mér til nokkurs
léttis fram í ræðu fiski-
málastjóra að þessi mál
eru auðvitað margrædd á
þessu þingi og umræður
um selveiðar því nokkuð
þróaðar og við ættum á þessu þingi að geta stuðst
við þau gögn sem að fyrri þing hafa frá sér látið í
þessu sambandi. Ástæðuna til þess að þetta er nú
til umræðu hafið þið fyrir framan ykkur í plöggum
þingsins. Það er frá deildunum. Sunnlendingar
senda frá sér svofellda ályktun:
„Fjórðungsþing Sunnlendinga itrekar fyrri
samþykktir varðandi fækkun sela við strendur
landsins. Jafnframt hvort ekki sé timabært að
greidd verði þóknun fyrir hvern drepinn sel.
Þingið bendir ennfremur á að sannast hefir að
hluta ormavandamálsins megi rekja til hvala.
Hringormurinn veldur síauknum skaða i fisk-
iðnaði landsmanna og er því brýnt að brugðið
sé skjótt við um minnkun selastofnsins. Fram-
kvæmd þessa máls telur fjórðungssamþandið
þest komna i höndum aðila sjávarútvegs og
landhúnaðar.“
Norðlendingar eru með svofellda tillögu:
,,Selur. Vegna stóraukins hringorms í fiski, sem
rakinn er til aukningar selastofnsins, verði
skipulögð veiði á sel til stórfækkunar á stofnin-
um. Reynt verði í því sambandi að koma á
veiðiverðlaunum til þess að örva selveiðar.“
Þetta er semsagt kölluð veiðiverðlaun hjá þeim,
en þóknun hjá Sunnlendingum. Þetta er sama
meiningin og ég tel að aðalatriði þessara tillagna sé
það, og bið embættismenn fundarins að sjá til
þess, að þessar tillögur eins og aðrar komist í
nefndir, verði þar ræddar og afgreiddar.
22 — ÆGIR