Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1983, Side 62

Ægir - 01.03.1983, Side 62
Guðni Þorsteinsson: Skýrsla um möskva- stærðartilraunir SV-lands 1982 1. Inngangur. Ýmsir bátamenn SVlands halda því fram, að lágmarksmöskvastærð í trollpoka, sem er víðast á veiðisvæðum togbáta 155 mm, sé of stór. Bæði er því haldið fram, að verulegt magn af karfa sé á því svæði, sem 155 mm lágmarksmöskvastærð eigi að vera í poka. Ennfremur er talið, að verulegt magn af nýtanlegri ýsu sleppi i gegnum 155 mm möskv- ana. Afleiðingarnar af þessu eru margs konar. I fyrsta lagi sleppur talsvert út af karfa, þegar verið er að taka trollið, enda er 155 mm allt of stór riðill fyrir karfa. Þessi karfi drepst þvi án þess að nýtast. í öðru lagi sleppur talsvert af nýtanlegri ýsu (sjá 1. linurit) og telja ýmsir, að eitthvað af þessari ýsu af- hreistrist til skaða eða jafnvel ólífis. í þriðja lagi beinist sóknin óeðlilega mikið í þorsk, þar sem rið- ilsstærðin hentar betur fyrir þá tegund. Og í fjórða lagi liggur sá grunur á, að ýmsir bátamenn bindi fyrir ofan við 155 mm riðilinn og noti því í ral1 135 mm riðil, þegar svo ber undir. . ., Það verður svo hver og einn að meta þessar yrðingar fyrir sig. Þó skal þess getið, að órækar sannanir eru fyrir því, að ýsa afhreistrist po ólífis við það að smjúga út um trollmöskvana- telja ýmsir vísindamenn ekki loku fyrir það skot' Vegna áðurnefndra vandamála þótti það óm^ ins vert að gera nokkrar tilraunir i þessu efm- til' árs 1981 var gerð rannsóknaáætlun um slíkar raunir og í byrjun september 1982 var þeim hrn11 ið í framkvæmd. 2. Tilraunirnar. Tilraunirnar fóru fram á ms. Barðanum Kc, • dagana 1.—13. september. Skipstjóri var ^ L”B<"Í"’ -MlJ 1. línurit. Kjörhœfnisferili fyrir ýsu í 151.5 mm ípokariöil í leiðangri B 13/75. Pólsk klceðning. Möskvastœrðin er ncerri P vera 155 mm mcelt með spjaldi. 166 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.