Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.08.1985, Qupperneq 12

Ægir - 01.08.1985, Qupperneq 12
Vélbátaútgerö ísafjörður var vagga vélbáta á íslandi. Það var Árni Gíslason formaður sem setti fyrstu mótor- vélina ífiskibát hérá landi. Bátur- inn var sexæringur, um 2 tonn að stærð og nefndur Stanley. Vélin var dönsk af Möllerupgerð, tvö hestöfl. Ekki þykir þetta mikið nú á dögum, en þannig hófst vélbáta- byltingin á íslandi. Vélbáturinn var fyrst reyndur 25. nóvember 1902 og reri á sína fyrstu vertíð frá Bolungarvík veturinn 1903. Reyndist hann vel í alla staði og voru dæmi þess að hann færi tvo róðra sama daginn á meðan árabátarnir gátu aðeins farið einn. Það liðu ekki nema örfá ár þar til vélbátar voru orðnir almennir í öllum veiðistöðvum við Djúp, svo hratt breiddist þessi nýjung út. Vélbátar höfðu líka í för með sér breytingu á útgerðarháttum, einkum þegar bátarnir tóku að verða stærri. Þá skipti mestu máli að hafa örugga höfn, en ekki að vera sem næst miðunum, eins og verið hafði á tíma áraskipanna. Isafjörðurvareinhverákjósanleg- asti útgerðarstaður í þessu tilliti, því þar var einhver besta höfn sem þekkist. Hitt skipti líka miklu að vélbátar þurftu á ýmiskonar þjónustu að halda og aukinn afli kallaði á aukið vinnuafl til fisk- verkunar. Allt var þetta til staðar í blómlegum kaupstað eins og ísa- firði. /vjótorbátum fjölgaði því mjög í bænum og árið 1906 voru 40 bátar gerðir þar út, en höfðu verið 10 um aldamót. Um 1910 var afli bátanna jafnmikill og seglskútanna. Vélbátarnir tóku við sem öflugustu veiðitækin. Útilegubátatíminn Bátarnir stækkuðu sífellt og fljótlega voru komnir þilfarsbátar með mótorum. Árið 1913 voru á ísafirði 6 mótorbátar stærri en 12 tonn, en 15 minni bátar. Næstu árin fjölgaði stærri bátunum mjög og náði sú þróun hámarki árið 1917 er 26 slíkir bátar gengu frá ísafirði í eigu 15 útgerðarmanna. Helstu útgerðarmennirnir voru þá Karl Olgeirsson verslunar- stjóri, Helgi Sveinsson útibús- stjóri og Axel Ketilsson kaupmað- ur. Tímabilið 1913—1925 hefur verið nefnt útilegubátatíminn á ísafirði. Lýsti Ásgeir Jakobsson þessum tíma vel í bók sinni „Sigl- ing fyrir Núpa". Stóru bátarnir, sem þá voru kallaðir, 20-30 lestir að stærð, stunduðu línuveiðar á útilegu yfir vetrarmánuðina við Vesturland og suður fyrir Snæfells- nes. Aflinn var saltaður um borð og öll vinna við beitingu, aðgerð og flatningu var unnin úti á opnu dekki. Er vart hægt að ímynda sér erf- iði það sem fylgdi veiðum þessum í vetrarkuldum á opnu hafi. Á sumrin stunduðu bátarnir síldveiðar. Síldin veiddist þá allt vestur í Djúp og reis upp allmikil síldarsöltun á ísafirði. En þung áföll steðjuðu að bátaflotanum fyrr en varði. Heimsstyrjöldin fyrri varð útgerðinni erfið, en það var þó síldarkrakkið 1919 sem veitti báta- útgerðinni stærsta skellinn. Þá hafði veiðst feikilegt magn af síld og allar horfur voru hinar bestu. En á einni nóttu snerist gæfu- hjólið andhverft er síldin se 1 ekki. j Þrátt fyrir stór töp af síld'11 héldu flestir áfram útgerð'0 næstu árin. Það var svo í gengishækkunarinnar 1925 söluerfiðleika á saltfiski eftir r bært aflaár að útgerðin hreinleg‘ hrundi. í ársbyrjun 1927 v° ellefu bátar auglýstir til UPP ^ á ísafirði. Nokkrir af he^ útgerðarmönnunum voru ge' upp, bátarnir tvístruðust 0 margir bestu skipstjórar fiotÁ j kvöddu ísafjörð. Útlitið var e , bjart fyrir sjómenn og verkafo ^ bænum, tilverugrundvöllur1 var að bresta. Samvinnuútgerb í þessu umróti var Sanivin1111 félag ísfirðinga stofnað í °e5 ember 1927. Að því stóðu he‘- , foringjar Alþýðuflokksins sen1 U fóru með forystu í bæjarmák1'1 og verkalýðsfélögin. Samvin|lL| félagið lét smíða 5 skip í Noref? 42^44 lestir að stærð. Bátar(l1 komu til heimahafnar um ar<1 mótin 1928-1929 og v°rl nefndir: ísbjörn, SæbjörÁ Ásbjörn, Valbjörn og Vébjörn- árinu 1929 bættust enn tveir hópinn, Auðbjörn og Cun11 björn. „Birnirnir"eða „RússarnK eins og þeir voru einnig kalla voru þá stærstu skipin í ísfir^1, flotanum, hin glæsilegustu 0 vönduðustu að allri gerð. San1 vinnufélag ísfirðinga var stær útgerðarfyrirtæki í þænum næs tvo áratugi og starfrækti aLf útgerðarinnar lifrarbræðslu, sl arsöltun og saltfiskverkun. Ný útgerðarfélög á erfib^ tímum Kreppan á fjórða tug aldarinn3 gerði allri útgerð í landinu errlt fyrir vegna verðfalls og sök1 432-ÆGIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.