Ægir - 01.11.1985, Page 12
dómi í yfirnefnd ráðsins. Þetta
kerfi hefur skapast af aðstæðum
sem einkennast af því að fiski er
landað í fjölda hafna víðsvegar
um land þar sem eru fáir eða jafn-
vel aðeins einn kaupandi og selj-
endur ekki átt í aðrar hafnir að
venda nema með ærnum til-
kostnaði. Mjög víða fara saman
eignarhald að útgerð og fisk-
vinnslu og því ekki um að ræða
að verð ráðist af samningum
óháðra aðila og er eigendum oft
hagkvæmast að landað sé í
heimahöfn og við sem lægstu
verði vegna hlutaskiptanna. Fram
til þessa hafa aðstæður hér á landi
ekki verið þannig að forsendur
hafi verið fyrir frjálsri verð-
myndun á fiski með hliðstæðum
hætti og gerist í ýmsum þéttbýlli
löndum Evrópu.
Grundvöllur hins fasta verð-
kerfis hefur hins vegar breyst á
ýmsa lund hin síðari ár. Aukin
burðargeta skipa hefur gert þau
síður bundin við heimahöfn en
áður var og bættar samgöngur á
landi hafa gert fiskflutning milli
hafna mögulegan í auknum
mæli. Seljendum hefur einnig
opnast auðveldari aðgangur að
mörkuðum erlendis með því að
stærri skipum er fremur hægt að
sigla til erlendra hafna og fersk-
fiskútflutningur í gámum hefur
opnað nýja möguleika. Jafnframt
þessu hafa upplýsingar um verð
og sölumöguleika jafnt á
erlendum mörkuðum sem innan-
lands stórbatnað með bættri upp-
lýsingatækni. Allt þetta hefur
orðið til að veikja stöðu fiskkaup-
enda og gert það raunhæfara að
huga að breytingum á núgildandi
verðlagningarkerfi. Á grundvelli
þessara breyttu aðstæðna sam-
þykkti Alþingi fyrr á árinu að veita
Verðlagsráði heimild til að gefa
verð á einstökum fisktegundum
frjálst. Til slíkrarákvörðunar þarf
þó í þessum efnum sem öðrum
624-ÆGIR
einróma samþykki aðila í ráðinu.
Slík samstaða hefur ekki náðst
hingað til og höfnuðu fulltrúar
kaupenda því t.d. við síðustu
verðákvarðanir að gefa verð
frjálst á loðnu til bræðslu og síld
til söltunar. Tilraun til frjálsrar
verðmyndunar hefði einmitt átt
vel heima í þessum greinum þar
sem minna er um tengsl milli
veiða og vinnslu en víðast annars
staðar. Á fundi sem fulltrúar Sam-
bands fiskvinnslustöðva áttu í
júli' s.l. með forsætisráðherra,
sjávarútvegsráðherra og viðskipta-
ráðherra var lagt til að heimildir
Verðlagsráðs til að gefa fiskverð
frjálst yrðu rýmkaðar. Landssam-
band íslenskra útgerðarmanna
telur á hinn bóginn að ekki sé
fengin næg reynsla af núgildandi
heimildum og því sé óvarlegt að
ganga lengra í þessu efni. Enda
þótt ég taki undir það sjónarmið
L.I.Ú. að varlega beri að fara í
þessum efnum tel ég vel koma til
greina að rýmka heimild til
frjálsrar verðmyndunar á þann
hátt að ef ekki næst samkomulag
í Verðlagsráði geti yfirnefnd gefið
verðið frjálst enda þótt einróma
samþykki séekki í nefndinni.
Annað atriði sem Samband
fiskvinnslustöðvanna lagði til á
fundinum í júlí var að sérstaklega
væri kannað hvort unnt sé að
koma á uppboðsmarkaði á
afmörkuðum svæðum til reynslu.
Forsenda þess að eiginlegur stað-
bundinn uppboðsmarkaður kom-
ist á er að nægilegur fjöldi kaup-
enda og seljenda sé á tilteknu
markaðssvæði. Eins og sam-
göngumálum og fjarlægðum er
háttað hér landi er þessi forsenda
óvíða fyrir hendi. Helst kæmi það
til greina á Reykjavíkur- og
Reykjanessvæðinu. í þessum
efnum virðist raunhæfara að
hugsa sér að frjáls verðmyndun
yrði til með atbeina fjarskipta, en
víða erlendis hafa verið þróuð
tölvukerfi sem nota mætti sem
grundvöll að upplýsinganeti fyrir
slík viðskipti. Öll þessi atriði
þarfnast þó mun meiri skoðunar
og tel ég því rétt að skipa nefnd til
að kanna þessi mál nánarog gera
tillögur um hvernig standa beri að
tilraun af þessu tagi.
Enda þótt forsendur séu til að
gera tilraun til takmarkaðra breyt-
inga á núgildandi verðmyndun-
arkerfi á þann hátt sem ég hef nú
lýst er fullljóst að í grundvallarat-
riðum munum við byggja á því lítt
breyttu á komandi árum. Á næstu
árum verðum við því að einbeita
okkur að því að bæta aflameðferð
og gæði innan þessa kerfis og
getum ekki vænst þess að það
mál verði leyst af markaðsöflun-
um einum.
Opinberu ferskfiskmati er
ætlað að skera úr um gæði afla
við löndun. Þaðerírauninni hluti
af verðlagningarkerfinu og sér í
mörgum tilvikum um endanlega
verðlagningu eftir gæðaflokkum-
I þeim tilvikum sem tengsl kaup-
enda og seljenda aflans gera
verðlagningu þeirra í milli mark-
lausa er fiskmatið grundvöllur að
því verðmætamati sem er undir-
staða hlutaskipta. Öflugt fersk-
fiskmat ásamt verðákvörðunum
sem byggja á því hlýtur því um
ókomin ár að verða virkasta
leiðin til að skapa sjómönnum og
útgerðarmönnum hvata til
bættrar aflameðferðar. Eins og
staða mála er í dag getur Ríkismat
sjávarafurða ekki þjónað þessum
tilgangi með fullnægjandi hætti-
Með nýjum lögum um Ríkismatið
sem samþykkt voru á Alþingi
1984 var mörkuð sú stefna að
ferskfiskmat Ríkismatsins skyldi
eflt til muna en afurðamatið að
miklu leyti fengið sölusamtökum
framleiðenda þarsem Ríkismatið
væri fyrst og fremst eftirlits- og
úrskurðaraðili. Til þess að fram-
fylgja þessum lögum og gera