Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1986, Síða 27

Ægir - 01.11.1986, Síða 27
unar og ótta við óhollustu hvers konar aukaefna. Við þurfum að gæta vandlega virðingar okkar sem matvælaframleiðsluþjóðar °g stefna ekki í hættu því góða áliti sem við njótum erlendis með bví að beita vafasömum aðferð- urn við að gera vörur okkar kræsi- legri í augum viðskiptavinana. Besta tryggingin fyrir því að framleidd séu góð og heilnæm ^atvæli er að samviskusamirfag- ^enn standi að vinnslunni og að freir beri fulla ábyrgð gagnvart stjórnvöldum eins og áður er getið. Opinbert gæðaeftirlit þarf yissulega að vera fyrir hendi til að §eta gripið hart og markvisst inn í atburðarrásina ef sameiginlegum ^arkaðshagsmunum okkar er stefnt í voða. Því tel ég þær hug- [ttyndir óraunsæjar sem settar nafa verið fram að undanförnu Urn að leggja beri Ríkismat sjáv- arafurða niður. Það er hins vegar ^ín skoðun að opinbert gæðaeft- lrlit eigi fyrst og fremst að felast í bví að skilgreina þau lágmarks- skilyrði sem uppfylla þarf til að tTlenn fái að vinna og selja fisk- ^urðir. Hið opinbera á að tryggja a& hvert fyrirtæki hafi á sínum Sn*rum viðurkennda fram- eiðslustjóra sem beri faglega ^Vrgð á því að lögum og reglum Urn framleiðsluna sé framfylgt. íálft eftirlitið felist síðan í U(tektum og sannprófun á að rarnleiðendur uppfylli lágmarks- s^ilyrði stjórnvalda. Þessi mál tengjast að sjálfsögðu ^nntunarmálum fiskiðnaðar- 'ns- Því ber að fagna að þau mál eru nú í endurskipulagningu. Eftir I er a& sjá hvort fjárveitingavaldið §eri það kleift að hefja þetta nám Pann stall sem því ber og mér synist hugur manna standa til. Að ■ 'num dómi eru fræðslumálin vkilatriði í þeirri þróun sem mun I '®a Ser stað innan sjávarútvegs- ns a komandi árum. Framtíbin Ég sé ýmis teikn á lofti um breytingar sem geta haft mikil áhrif á þróun sjávarútvegs og fisk- vinnslu hér á landi. 1. Vegna nýlegra uppgötvana um hollustu fiskmetis og óholl- ustu harðrar feiti mun neyslu- mynstur á fiski breytast. Þess sér þegar stað að hefðbundnar djúp- steiktar afurðir eru á undanhaldi fyrir vörum sem innihalda meiri fisk og minni fitu og brauðmylsnu. Þetta mun gera auknar kröfur um ferskleika fisksins sem verður neytt í ríkara mæli vegna eigin ágætis. Þetta gæti leitt til þess að þýðing fisks sem frystur er um borð í veiðiskipum fari vaxandi á þessum mörkuðum vegna meiri ferskleika. 2. Stórtækar framfarir munu eiga sér stað í sjálfvirkni og vinnslutækni. Tölvustýrð vinnslu- og gæðamatstæki eru þegar farin að sjá dagsins Ijós. Sjálfvirkur beinagreinir er orðinn staðreynd sömuleiðis ferskleikaflokkunar- vél, unnið er að búnaði sem sker burt beingarð í flökum o.s.frv. Þannig munum við á næsta ára- tug sjá nánast sjálfvirkar vinnslu- stöðvar sem flokka og vinna fisk- inn á hvaða hátt sem við viljum. Slíkur tækjabúnaður verður hins vegar dýr og getur tæplega borg- að sig nema í mjög stórvirkum einingum. Þessi tæki gætu einnig leitt ti I þess að jafnauðvelt yrði að framleiða ýmsar sérunnar fisk- afurðir um borð í verksmiðju- skipum eins og í landi. 3. Áhrif sérfræðinga á sviði matvælavinnslu og matvælavið- skipta munu almennt aukast. Þetta mun gera meiri kröfur um ýmis konar upplýsingar um fiskafurðir okkar, innihald nær- ingarefna, gerlagróður, meng- unar- og aukaefni. Gæðaeftirlit fyrirtækja og opinberra aðila verður einnig meira undir smásjá viðskiptavinaokkar íframtíðinni. ÆGIR - 667

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.