Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1986, Blaðsíða 56

Ægir - 01.11.1986, Blaðsíða 56
NÝ FISKISKIP Hafnarey SF 36 28. júní s.l. bættist við flota Hornfirðinga nýtt fiskiskip, m/s Hafnarey SF 36, sem keypt var notað frá Svíþjóð. Skip þetta, sem áður hét Santos A v Öck- erö, er smíðað árið 1982 hjá Marstal Skipsværft & Maskinfabrikk A/S í Marstal í Danmörku, og er smíðanúmer 100 hjá stöðinni. Skipið er sérstaklega byggt til togveiða og er með eitt heilt þilfar milli stafna og hlífðarþilfar yfir mestum hluta aðalþilfars. Áður en skipið kom til landsins var lestin einangruð og klædd, og eftir humarvertíð var settur ískipið búnaður til vinnslu og frystingar á rækju, ásamt hjálparvélasamstæðu, og er þeim breytingum nýlokið. Þá hefur rafeinda- tækja- og öryggisbúnaður verið betrumbættur. Hafnarey SF er í eigu Krosseyjar h.f., Höfn, Hornafirði. Skipstjóri á skipinu er Jón Hafdal og I. vélstjóri Gísli Páll Björnsson. Almenn lýsing: Skipið er smíðað úr stáli, og er óflokkað, með eitt heilt þilfar stafna á milli, gafllaga skut, hIífðarþiIfar (efra þilfar), sem nær að toggálga, aftarlega á skip- inu, og brú á reisn réttframan við miðju á hlífðarþil- fari. Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið framan frá: Stafnhylki fyrir ferskvatn; íbúðir fram- skips (lúkar) ásamt botngeymi fyrir ferskvatn; fiski- lest með botngeymum fyrir brennsluolíu; vélarúm; og aftast stýrisvélarrými og kælivélarými ásamt geymum fyrir brennsluolíu o.fl. í síðum. í lokuðu milliþilfarsrými á aðalþilfari er fremst geymslaog íbúðarými þarfyriraftan. Aftan við íbúða- rými er aðgerðarrými undir hIífðarþiIfari og vélar- reisn b.b.-megin. í afturkanti hIífðarþiIfars eru tog- gálgar út við síður með sambyggðum toggálgapalli þvert yfir, og aftan við þá er opin gryfja, þar sem vörpuvindu er komið fyrir. Stýrishús skipsins er rétt framan við miðju á hlífð- arþilfari, einsogfram hefurkomið. Aftastá þaki stýr- ishúss er ratsjármastur með bómu. Mesta lengd ........................ 22.50 m Lengd milli lóðlína ................ 19.50 m Breidd (mótuð) ...................... 6.80 m Dýpt að hlífðarþilfari .............. 5.70 m Dýpt að aðalþilfari ................. 3.50 m Særými (djúprista 3.20m) ............um270 t ^ Lestarrými ........................ um 80 m Brensluolíugeymar ................... 33.0 m Ferskvatnsgeymar ..................... 8.6 m Rúmlestatala ......................... 101 brl Skipaskrárnúmer ..................... 1738 Vélabúnaður: Aðalvél skipsins er Grenaa, gerð 6 FR 24 TK, se* strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftirksel' ingu, sem skilar 596 KW (810 hö) við 750 sn/mím Við vélina er niðurfærslu- og skiptiskrúfubúnaður frá Grenaa, niðurgírun 2.14:1, skrúfa 3ja blaða meo 1760 mm þvermáli, og utan um skrúfu er skrúfu- hringur. Við fremra aflúttak aðalvélar tengist útkúplan' legur deiIigír frá Hytekafgerð FGT-620-63 HC, 300 hö, með þrjú úttök. Viðgírinn tengjasttvær Danfoss Eaton vökvaþrýstidælur af gerð 7620 PV, sem eru fyrir vindubúnað. Aðalvél knýr jafnframteinn Transmotor ACG 155 jafnstraumsrafal, 3.5 KW, 24 V. Tværhjálparvélasamstæðureru ívélarúmi, önnur s.b.-megin og hin b.b.-megin. Hafnarey SF á siglingu. 696-ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.