Ægir - 01.05.1992, Blaðsíða 20
236
ÆGIR
5/92
Meðalverð og hlutfallsleg
skipting útflutningsins eftir
vinnsluaðferðum
í 3. tbl. Ægis 1992 var birt yf-
irlit yfir útflutninginn og hver
verðþróun var eftir vinnsluað-
ferðum. Á meðfylgjandi mynd-
um eru sömu upplýsingar settar
fram á myndrænan hátt auk þess
sem birt er yfirlit yfir þróun út-
flutningsins til lengri tíma. Mesta
breytingin í þróun útflutnings
sjávarafurða á síðasta ári, ef
undan er skilin hefðbundin
sveifla í útflutningsverðmætum
fiskmjölsiðnaðarins, var minnk-
andi útflutningur ísfisks. Á síð-
asta ári minnkaði munur á fisk-
verði innanlands og markaðs-
verði á ísfiskmörkuðum erlendis.
Ekki stóð á viðbrögðum útgerðar
við hlutfallslega hækkandi verði
innanlands. Stórlega dró úr út-
flutningi ísfisks og voru einungis
flutt út rúmlega 106 þúsund
tonn af ísvöróum botnfiski á ár-
inu 1991, á móti rúmum 136
þúsund tonnum áriö áður. (Hér
er miðað viö magn úr sjó, þ.e.
óslægðan fisk með haus.) Á móti
minnkandi útfl'utningi ísfisks
jókst magn botnlægra tegunda í
landfrystingu úr rúmum 311
þúsund tonnum í liðlega 322
þúsund tonn auk þess sem afli
botnlægra tegunda sem frystar
voru í hafi jókst úr rúmlega 117
þúsund tonnum í tæplega 134
þúsund tonn. (Þegar talað er um
„botnlægar tegundir" er átt við
allar tegundir sjávarfangs aðrar
en loðnu og síld.) Á mynd sem
sýnir breytingar á verði per kg af
útfluttum frystum fiski er sýnd
umtalsverð hækkun á afurðum
frystingarinnar, eða tæplega
13% hækkun mæld í SDR. Ekki
er raunhæft að færa þessa hækk-
un yfir á frystinguna í heild.
T.a.m. minnkaði frysting síldar
umtalsvert milli ára, en þar er
um hlutfallslega verðlitla afurð
að ræða og á móti kom lækk-
andi verð á landfrystri rækju.
Vafalaust var það samt svo að
BOSCH
ÞJÓNUSTA
DIESELVERKSTÆÐI
VARAHLUTAÞJÓNUSTA
ÁRATUGA ÞEKKING OG REYNSLA
í STILLINGUM OLÍUKERFA DIESELVÉLA
MEÐ 12 STROKKA BOSCH STILLIBEKK
BRÆÐURNIR
ÐJOKMSSONHF
LÁGMÚLA9, SÍMI 38820