Ægir - 01.12.1992, Page 9
12/92
ÆGIR
617
um þann leiðangur hér.
Stuttur leiðangur var farinn á r/s
Bjarna Sæmundssyni í apríl 1992.
Sá leiðangur náði aðeins til svæð-
isins innan íslensku fiskveiðilög-
sögunnar, en skip höfðu þá þegar
hafið veiðar þar. Ekki reyndist
unnt að magnmæla úthafskarfa
með bergmálsaðferðum á þessum
tíma vegna þess hve mikið var um
truflanir frá öðrum lífverum, svo
sem laxsíldum o.fl., og einnig
vegna þess hve djúpt úthafskarf-
inn hélt sig. Beindist leiðangurinn
því fyrst og fremst að könnun á út-
breiðslu úthafskarfans á þessu
svæði og á þessum tíma. Virtist út-
breiðsla hans ekki ná norður fyrir
65°N.br. Ennfremur stóð karfinn
dýpra en þegar kemur lengra fram
á vorið, enda nálægt goti.
Bergmálsmælingarnar 1992
voru gerðar á r/s Bjarna Sæ-
mundssyni á tímabilinu 16. júní
til 7. júlí. Kannað var um 82.000
fermílna svæði milli 64°N og
57°N á 10 sniðum sem lágu í
austur-vestur með um 30 sjó-
mílna millibili (mynd 1). Veður
var til nokkurs trafala í upphafi
leiðangurs, en þó einkum í lok
hans og varð að breyta nokkuð
fyrirhuguðum leiðarlínum af þeim
sökum. Ennfremur náði ís óvenju-
langt út við suðurhluta Austur-
Grænlands, sem einnig orsakaði
styttingu leiðarlína.
Við bergmálsmælingarnar var
notuð 38 kHz SIMRAD EK500/
BI500 mælasamstæða. Til sýna-
töku var notuð Gloríuflotvarpa frá
Hampiðjunni (stærstu möskvar 32
m). Sjávarhiti var mældur reglu-
lega og fylgst var með útbreiðslu
dýrásvifs og blaðgrænu.
Bergmálsmæling
A könnunarsvæði r/s Bjarna
Sæmundssonar gaf bergmálsmæl-
ingin 1.3 milljón tonn, en það er
langt t'rá því að þessi mæling nái
til alls útbreiðslusvæðisins. Mynd
2 sýnir hlutfallslega útbreiðslu
samkvæmt bergmálsgildum. Rétt
er að benda á nokkur atriði í sam-
bandi við útbreiðsluna:
1. Útbreiðsla úthafskarfans
reyndist svipuð nú og í fyrra á
því svæöi sem þá var kannað,
þ.e. hann var þéttari vestantil
á svæðinu en austantil.
2. Úthafskarfa varð vart í litlum
mæli í nokkrum togum þar
Mynd 2
Útbreiðsla og þéttleiki úthafskarfa eftir bergmálsgildum í leiðangrinum.
45°
40*
35°
30°
25*