Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1992, Síða 13

Ægir - 01.12.1992, Síða 13
12/92 ÆGIR 621 Mynd 6 Heildarafli úthafskarfa frá upphafi veiða 1982. Þús. tonn I982 83 84 85 86 87 88 89 90 9I 92 mikið eða lítið sé um þá. Af rúm- lega 4000 fiskum sem skoðaðir voru með tilliti til þessa árin 1991 og 1992 voru um 60% með slíka bletti í holdi. Um 35-40% voru með það litla bletti að til lítilla lýta verður að teljast. í 4-5% tilvika var mjög mikið um þessa bletti og voru þeir til verulegra lýta á flökum. Menn hafa viljað setja þessa bletti í holdi í sam- band við ytri sýkingu. Ekki hefur verið unnt að staðfesta slíkt sam- hengi ennþá. Fæða Magar voru skoðaðir reglulega. Að vanda voru flestir magar út- hverfir (61%) og tómir (20%). Að- eins 19% maganna voru með innihaldi, en þar af voru fáir fullir. Fæðan var að langmestu leyti sviflægar marflær, en þarnæst komu rauðátutegundir og Ijósáta. Aðeins í fáum mögum mátti greina leifar af smáfiski. Djúpkarfi Vinnuhópur á vegum Alþjóða- hafrannsóknaráðsins, sem m.a. lagði drögin að hinni fyrirhuguðu samræmingu rannsókna Rússa og Islendinga, gerði ráð fyrir í áætlun sinni að tekin yrðu nokkur djúp- tog (á meira en 500 m dýpi) í bergmálsmælingaleiðöngrunum. Það var gert og togað á víð og dreif um svæðið. I þeim öllum fékkst djúpkarfi. Þetta staðfestir enn frekar fyrri athuganir um til- vist djúpkarfa í Grænlandshafi. Mat á stofnstærð í þessum leiðangri var kannað nokkru stærra svæði en 1991. Það náði þó ekki yfir nema hluta útbreiðslusvæðisins. Rússar voru við rannsóknir og bergmálsmæl- ingar frá því í maí og fram undir miðjan júlí. Þeir voru hins vegar að mestu utan efnahagslögsögu Islands og Grænlands og fóru að- eins síðustu dagana inn í græn- lenska lögsögu. Með tilliti til tímamismunar á athugunum þeirra og okkar var ekki unnt að samræma mælingarnar nema að litlum hluta. Á sama tíma og ís- lendingar voru við mælingarnar í sunnanverðu Grænlandshafi voru Rússar við mælingar sunnan 57°N.br. (sjá mynd 5). Á þessu svæði (þ.e. sunnan 57°N) mældu Rússar um 630 þús. tonn af út- hafskarfa. íslenska mælingin (1.3 millj. tonn) að við bættum þess- um 630 þús. tonnum gefur því u.þ.b. 1.9 millj. tonn á 165.000 fermílna könnunarsvæði. Þessar rann-sóknir ná þó ekki til alls útbreiðslusvæðis úthafskarfans. Má þar helst um kenna tíma- skorti, töfum vegna veðurs og óhagstæðrar útbreiðslu íss. Veiðarnar Veiðar á úthafskarfa hófust 1982 og voru Sovétmenn stórtæk- astir, en drjúgan þátt í veiðunum næstu árin áttu Austur-Þjóðverjar, Búlgarar o.fl. Austur-Evrópuþjóð- ir. Hámarki náðu þessar veiðar árið 1986 (105.000 tonn). íslend- ingar hófu veiðar árió 1989. Sama ár minnkaði heildarafli niður í 37.000 tonn. Meginorsök þessa mikla samdráttar var stór- minnkuð sókn Sovétmanna. Rúss- ar héldu þó veiðum áfram en afli þeirra var kominn niður í um 6.000 tonn árið 1991. Á þessu ári (1992) juku Rússar aftur nokkuð sóknina og Þjóðverjar hófu veiðar að nýju. Nákvæmar aflatölur liggja ekki fyrir en heildaraflinn á þessu ári lítur út fyrir að verða um 45-50 þús. tonn. Afli Islendinga hefur stóraukist þessi ár, eða úr um 3.200 tonnum 1989 í um 16.200 tonn í ár (1992). Hingað til hafa þessar veiðar verið stundaðar á tímabilinu apríl-ágúst. En nú hafa Þjóðverjar haldið þessum veiðum áfram fram eftir hausti og voru enn að í nóvember. Bendir það til þess að lengja megi þann tíma sem skip geta stundað úthafskarfaveiðar. Summary The results of an lcelandic acoustic survey for assessment purposes of the oceanic Sebastes mentella in the Irminger Sea, in 1992, are given. Some results of a Russian survey with the same purpose in May-July, 1992, are mentioned. The lcelandic survey

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.