Ægir - 01.12.1992, Page 19
12/92
ÆGIR
627
Bátar yfir 500 rúmlestum
Þessi flokkur skipa er eingöngu
loðnuveiðiskip með tiltölulega
litla rækjuveiði og næstum enga
botnfiskveiði. Upphaflega kom
þessi stærð skipa úr síðutogurum
sem var breytt í lok áttunda ára-
tugsins.
Togarar undir 500 rúmlestum
Ekki er mikið um þessa þróun
að segja annað en að 1975 voru
42 togarar í þessum flokki og má
segja að þessi flokkur skipa hafi
tekið við hlut útlendinga við út-
færslu fiskveiðilögsögunnar í 50
og 200 mílur.
Afli togara undir 500 rúmlest-
um minnkaði um 9% en sókn
þessara skipa stóð í stað, þó fækk-
aði skipum um fjögur milli ára.
Togarar yfir 500 rúmlestum
Fyrir áratug voru skip í þessum
flokki eingöngu ísfiskskip sem
gerð voru út frá Akureyri og
Reykjavík og Hafnarfirði, sú við-
bót sem hefur orðið síðan 1985 er
fyrst og fremst frystiskip sem kom-
ið hafa úr togurum undir 500
rúmlestum og ný skip innflutt, en
togarar undir 500 rúmlestum hafa
verið úreltir í staðinn.
Aukning í afla varð 7% en sókn
jókst um 12%, þar af varð fjölgun
um eitt skip milli ára.
Samantekt
Eins og sjá má af þessu yfirliti
yfir fiskiskipaflotann er fjölbreytn-
in í sókn mikil, hver skipastærð
hefur sitt sóknarmynstur og skipt-
ing milli botnfisks og sérveiða er
ólfk milli skipaflokka. Það sem
ekki kemur hér fram er árstíða-
skipting sóknarinnar, þar sem hin-
um ýmsu veiðarfærum er beitt til
að ná sem mestri hagkvæmni í
sókninni í hinar ýmsu tegundir.
Hér er heldur ekki sýnd skipting í
Tafla 11 Veiðar báta yfir 500 rúmlestum
Hlutdeild í sókn veiðarfæra 1990
Botnfiskur: 1989 1990 í heild í úthaldi
Botnvarpa 3.648 1.388 0,2%
Sérveiðar:
Loöna 257.927 273.623 39,4% 67,5%
Síld 28.208 1.350 1,5% 21,4%
Rækja 9.588 3.576 10,3% 1 7,3%
Breyting milli ára
Afli sérveiða 295.723 278.549 -5,8%
Afli botnfisks 3.648 1.388 -62,0%
Samtals afli 299.371 279.937 -6,5%
Úthaldsdagar 3.396 3.251 -4,3%
Fjöldi skipa 14 14 0,0%
Tafla 12
Þróun báta yfir 500 rúmlestum
1980 1985 1990
Fjöldi 10 8 14
Meðalstærð (rúmlestir) 758 754 764
Meðalaldur 13 15 16
Meðalvélarafl (hestöfl) 2.536 2.552 2.670
Tafla 13 Veiðar togara undir 500 rúmlestum
Botnfiskur: 1989 1990 Hlutdeild í sókn veiðarfæra 1990 í heild í úthaldi
Botnvarpa 258.660 235.635 52,0% 41,1%
Sérveiöar:
Rækja 3.479 4.198 12,1% 6,1%
Loðna 11.619 0 0,0% 0,0%
Breyting milli ára
Afli sérveiða 15.098 4.198 -72,2%
Afli botnfisks 258.660 235.635 -8,9%
Samtals afli 273.758 239.833 -12,4%
Úthaldsdagar 24.870 24.040 -3,3%
Fjöldi skipa 84 79 -6,0%
Tafla 14
Þróun togara undir 500 rúmlestum
1980 1985 1990
Fjöldi 70 89 79
Meðalstærö (rúmlestir) 411 395 385
Meöalaldur 6 9 13
Meöalvélarafl (hestöfl) .303 1.271 1.237
tegundir eftir veiðarfærum.
Hvorutveggja væri áhugavert og
annað yfirlit sem sýndi sókn á
einstökum landshlutum og
svæðum. Þetta yfirlit sem hér er
sett fram er það viðamikió að
annað var látið bíða til seinni
tíma. Lögð var áhersla á að sýna
veiðarfæraskiptingu einstakra
skipaflokka og hlutdeild þeirra í
heildarafla einstakra veiðarfæra,
ennfremur að sýna hlutdeild