Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.12.1992, Qupperneq 25

Ægir - 01.12.1992, Qupperneq 25
12/92 ÆGIR 633 ÆGIR í 85ÁR i'yi'ii* oor eítii* 181 t. Eftir Fr. Macody Lund. (Þýtl úr »KrinKsjniiH| Voltaire, sem ritað hefir, að kalla má, um alt milli himins og jarðar, kemstþann- ig að orði um sjófiskveiðar: »Að veiða síld og salta, virðist i fljótu hragði, að vera lítilvægt atriði fyrir veraldarsöguna, en þó, hætir hann við, á Amsterdam þessu einkanlega að þakka auð sinn og meira að segja, það er þetta, sem gert hefir land sem áður var umkomulaust og ófrjósamt, að auðugu og miklu veldi. þegar uni miðhik .3. aldar e Kr. segir liinn rómverski rilhöfundur Solinus, að í- húar Suðureyja kunni ekki til kornyrkju, en lifðu á fisk og mjólk, og Swindon i sinni Historv and Antiquities of Greal Yarmouth hyggur að sildveiðar við Yarmouth hyrji eflir landgöngu Saxa á ö. öld. Það er eigi þörf á að undrast framar sögu Hero- dóts um fiskinetið, er maður minnist hversu spuna og vefaralistin var komin á liátt stig; og elztu múmíurnar og gömlu norrænu grafhaugarnir sýna að norðurbyggiar hafa þegar á steinöldinni haft fiskinel, því að leifar þeira finnast þar. Kyvindur skálda- spillir talar árið 960 um síldarnætur. Mótor-fiskibátar. (Eftir »Aftenposten«). í Danmörku er nú ekki lengur talað um að byggja fiskibáta, án þess um leið, að gera ráðstöfun til að fá mótor til þess að knýja bátinn áfram, og draga veiðar- færin. Þótt það sé að eins örfá ár siðan fyrst var farið að reyna mótora í fiskibáta, þá sýnir það bezt, hve mönnum líkar vel við mótorana og hve ómissandi þeirverða til þessarar notkunar i framtiðinni, hversu ótrúlega mikilli útbreiðslu þeir hafa náð á svo örstuttum tíma. Mannserfiðið er orðið dýrt, því margir vegir opnast nú til að framfleyta lífinu og framleiða fé, sem áður var hulið; þess vegna verður vélaraflið bæði nauðsynlegt og ódýrt, þar sem það afkastar miklu meiri vinnu fyrir minna verð. Veðrátta hefur verið óstöðug og vindasöm nú síðan 22. nóv. og hafa því ógæftir, eftir því sem frétzt hefir, liamlað aflabrögðum alstaðar við land. Kútter Björn ólafsson af Seltjarnarnesi, skipstjóri Einar Ein- arsson frá Flekkudal i Kjós, kom hingað til Reykjavíkur í dag (þ. 18.) frá Krist- jánssandi í Noregi. Hann hafði fengið ofsaveður á leiðinni milli fslands og Fær- eyja, en varð ekki fyrir neinum skemdum, öðru en því að brjóta »Klyferbommuna«. Skipið hefur timburfarin hingað.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.