Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1992, Page 56

Ægir - 01.12.1992, Page 56
REYTINGUR Nílarkarfi Nílarkarfi er afrískur ferskvatns- fiskur. Hann er áð finna í ám og vötnum Mið-Afríku, aðallega í Viktoríuvatni. Hann getur orðið allt að 150 kg og 2 metra langur. Ræktun á Nílarkarfanum mun aukast í náinni framtíð, framboð aukast og sölumöguleikar á heimsmarkaði. Ennþá hefur Níl- arkarfinn ekki verið nýttur sem skyldi til útflutnings, en minna en 10% af honum er flutt út. Vöru- gæði og stöðugleiki í framboði eru háð breytingum í flutninga- kerfi landanna sem rækta hann. Nílarkarfinn hefur verið kynntur á mörgum mörkuðum, fyrst í byrjun sjöunda áratugarins, en hefur enn ekki fengið fulla viðurkenningu sem markaðsvara. Ræktunin er aðallega í Kenýa, Tansaníu, Úganda, eða meðfram Viktoríuvatni, en Nílarkarfi finnst einnig í Nígeríu. Tansanía hefur lengstu strandlengjuna og bestan aðgang að auólindinni, en Kenýa hefur besta flutningakerfið til stuðnings útflutningi. Um þessar mundir þykir Nílarkarfinn frá Kenýa bestur, en það gæti breyst þar sem Tansanía og Úganda þróa sama útflutningsiðnað. Landanir hafa tvöfaldast frá árinu 1986 og námu 327.000 tonnum árið 1990. Þessi tala getur verið hærri eða lægri í raunveruleikan- um vegna skorts á réttum upplýs- ingum. Arlegur hámarksafli gæti numið yfir 450 þús. tonnum. Markaður fyrir Nílarkarfa hefur verið í Hollandi, Belgíu, Grikk- landi, Frakklandi, Þýskalandi, ís- rael, Japan, Singapúr, Hong Kong og Bandaríkjunum. Fiskholdið á Nílarkarfarnum er hvítt. Minni Nílarkarfinn (undir 12 kg) er mildari og hvítari, lík- Hér getur að líta Nílarkarfa. lega ágætur fyrir bandaríska neyt- endur. Stærri karfinn ætti að vera eftirsóttari í Japan þar sem hann er fituríkari. Útflutningsfyrirtæki kaupa helst 3 til 5 kg fisk. Mestur útflutningur er á flökurn, aðallega frystum, roðflettum og úrbeinuð- um. Omega3 fitusýrur eru í ríkum mæli í fiskinum og líkist hann grálúðu að því leyti. Verð á Nílarkarfa hefur verið breytilegt í Evrópu þar sem gæði fisksins hafa verið misjöfn. I Belg- íu var verð á Nílarkarfa frá 3$/kg í 10$/kg fyrir fryst flök. Verð í Þýskalandi og Bandaríkjunum hef- ur verið í kringum 5$/kg sl. tvö ár. Takmarkaður árangur hefur orðið af kynningu á Nílarkarfan- um, aðallega vegna skorts á gæð- um þar sem mikill útflutningur var í upphafi án viðeigandi fyrir- hyggju. Nú er unnið að því að auka gæðin og koma á stöðugu framboði. Ef nýting Nílarkarfans verður með skynsamlegum hætti þá gæti vel hugsast að hann verði góður valkostur á heimsmörkuð- um þegar skortur er á öðrum líkum fisktegundum. Vinnsta á Nílarkarfa.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.