Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.1993, Side 24

Ægir - 01.09.1993, Side 24
Fœreyingar fagna hér nýju glœsilegu skipi. En gleðin reyndist skammvinn. og við neyddumst oft til að gefa vill- andi upplýsingar um verð þótt það væri brot á lögum. Við gátum t.a.m. gert samning um lítið magn á góðu verði, en áttum þá jafnan á hættu að stjórn Hráefnissjóðs, sem hafði njósn- ara í öllum frystihúsum til að fylgjast með framleiðslunni, legði þetta verð til grundvallar öllu hráefninu." Danskir ríkisstyrkir Stjórnmálamenn sáu fljótt hvað verða vildi og ræddu oft um nauðsyn þess að breyta skipulaginu en lítið varð um framkvæmdir. Haft var fyrir satt að enginn þeirra þyrði að hreyfa við styrkjakerfinu því þá ætti hann a hættu að tapa í næstu kosningum- A Suðurey og Sandey voru 3 stór frysti- hús sem framleiddu eingöngu blokk- Fyrir bragðið var nær öll fiskvinnsla a þessum eyjum um langt árabil á frani' færi opinberra sjóða. Fyrir framleiðsl- una var greitt með tekjum af þorski og ýsu sem línubátar í Norður-Færeyjun1 fluttu að landi. Aðalatvinnuvegur þjóðarinnar elti þannig skottið á sjálf- um sér árum saman og danskir ríkis- styrkir hjálpuðu til við að viðhalda þeirri almennu blekkingu að raun- veruleg verðmætasköpun færi fram 1 landinu. Landssjóður var einnig kom- inn í alvarlega sjálfheldu. Þegar eitt sinn var búið að kaupa skipin með að- stoð hins opinbera var erfitt að skera niður fjárveitingar til Hráefnissjóðs. Það hefði einfaldlega þýtt að skipi° misstu eina mikilvægustu tekjulind sína og færu á hausinn og það þýddi aftur að landssjóður, sem átti veð • skipunum, tapaði miklum fjárhæðum- Nær allir togarar sem keyptir voru a síðasta áratug fóru að endingu á nauð- ungaruppboð og færeyskur almenn- ingur stendur nú uppi með tuga millj" arða króna tap vegna þeirrar offjárfest- ingar í sjávarútvegi sem var bein af- leiðing af styrkjapólitíkinni. Stöðugur halli á fjárlögum Nokkur dæmi má nefna um hvað þessi pólitík kostaði landsmenn 1 beinhörðum peningum. Á síðasta ára- tug fóru að jafnaði tæp 20% af árleg' um tekjum landssjóðs til að halda uppi fiskvinnslu á eyjunum. Styrkrr voru misjafnir frá ári til árs en hækk- uðu alltaf í kosningaárum. Sem dæm1 má nefna að um þriðjungur af tekjum landssjóðs fór til slíkra styrkja kosn- ingaárið 1984 og 23% kosningaári^ 390 ÆGIR SEPTEMBER 1993

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.