Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Blaðsíða 5

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Blaðsíða 5
Gunnar Eydal hdl.: SKYLDUR VINNUVEITANDA OG STARFSMANNS I. Efni það, sem hér er til umræðu, er nefnt skyldur vinnuveitanda og starfsmanns. Nær það yfir mjög stórt svið, og er ekki alveg vandalaust að takmarka það við þann ræðutíma, sem mér er ætlaður. 1 þeim til- gangi að takast megi að draga upp nokkra heildarmynd af skyldum vinnuveitanda og starfsmanns, mun ég í stuttu máli fjalla um helstu atriði, sem hér koma til álita. Andstæðan við skyldur eru réttindi, skyldur vinnuveitanda eða starfsmanns eru spegilmynd af réttindum hins. Til þess að framsetning megi vera skýrari, mun ég ræða málið fyrst og fremst út frá stöðu starfsmannsins, og verður fyrst rætt um skyldur starfsmanna og síðar um réttindi. II. SKYLDUR STARFSMANNA. VINNUSKYLDAN Meginskylda starfsmanns er vinnuskyldan, þ. e. sú skylda hans að inna af hendi þau verk, sem hann hefur skuldbundið sig til, og gera það á þann hátt, að viðunandi megi teljast með tilliti til allra aðstæðna, svo sem menntunar eða sérþjálfunar, vinnuaðstöðu o. fl. Þegar starfs- maður er ráðinn til starfa, er um það samið, að hann skuli gegna til- teknum störfum eða verksviði. I fæstum tilfellum mun þó vera gerður skriflegur samningur um þetta, heldur mun oftar byggt á munnlegum fyrirmælum eða venjum, sem skapast hafa um hið tiltekna starf. Þannig er það meginregla, að starfsmanni verði ekki gert að vinna verk, sem fellur utan við það verksvið, sem starfinu tilheyrir, nema samkomulag verði um annað milli vinnuveitanda og starfsmanns. Þó að sama ábyrgð sé fólgin í hinu nýja starfi og því fylgi sömu laun og hinu fyrra, þarf starfsmaður ekki að samþykkja breytingu á verk- 131

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.