Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Blaðsíða 34

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Blaðsíða 34
kynnti frumvarpið um umboðsmann Alþingis. Magnús Thoroddsen borgar- dómari flutti erindi, er hann nefndi: Verndun einkalífs gegn tölvunotkun. Pró- fessor Þór Vilhjálmsson ræddi um hafréttarráðstefnuna í Caracas. Að venju sáu laganemar um tvo sjónvarpsþætti, þar sem réttarhöld voru sett á svið, en auk þess voru haldnar tvær málflutningsæfingar. Útgáfustarfsemi var mikil á árinu. Þegar þetta er ritað, eru þó enn óút- komin 3. og 4. tbl. Úlfljóts 1974, en eru væntanleg fyrir áramót. Reiknað er með, að árgangurinn verði hátt í 450 blaðsíður með 18 fræðigreinum um ólík svið lögfræðinnar. Eitt fylgirit kom út með blaðinu, en í því er birt erindi Hans G. Andersens ambassadors um hafréttarmál, sem hann flutti á XIX. norræna laganemamótinu. Þá var hafin útgáfa á nýju blaði, sem nefnist Grímur geitskór. Komu út 4 tölublöð, samtais 48 síður. Nokkur kennslurit voru gefin út á árinu. Var m. a. gefinn út Stjórnarfarsréttur I eftir Ólaf Jó- hannesson, er Páll Sigurðsson dósent endurskoðaði. Hátíðisdagur Orators var haldinn laugardaginn 16. febrúar. Bæjarþing Orators var sett kl. 14 í Norræna húsinu og dómur upp kveðinn. Þá var sýnd kínversk kvikmynd, en að henni lokinni heimsóttu laganemar kínverska sendi- herrann í sendiherrabústaðinn að Víðimel 29. Um kvöldið var fagnaður að Hótel Loftleiðum. Heiðursgestur var Jón Sigurðsson ráðuneytisstjóri, en ræðu- maður af hálfu kandidata var Björn Ástmundsson. Mikið var um utanferðir og stúdentaskipti laganema. Auk þátttakenda í laganemamótinu dvöldust hér þrír norrænir laganemar í vikutíma í kringum 16. febrúar. Þá voru laganemar frá Ohio Northern University hér í hálfan mánuð í nóvember. Orator sendi á starfsárinu fulltrúa á formannaráðstefnur Norræna laganemaráðsins í Finnlandi og Svíþjóð. Þá fóru fulltrúar á seminör og árshátíðir í Lillehammer, Osló, Gautaborg, Kaupmannahöfn og Finnlandi. í september fóru þrír laganemar til 6 vikna dvalar við háskólann í Ohio. Vísi.ndaleiðangrar voru með hefðbundnum hætti. 4., 5. og 6. árs laganemar fóru í þriggja daga ferð til Húsavíkur og sóttu heim Sigurð Gizurarson sýslu- mann. Aðrir laganemar fóru í dags ferð austur á Hvolsvöll til fundar við Björn Fr. Björnsson sýslumann. Að venju var mikil þátttaka í ferðum þessum. I upphafi kjörtímabils ákvað stjórnin að fækka fundum um fræðileg efni vegna lélegrar fundarsóknar laganema. Þess í stað var ýmsum mótum fjölgað frá því sem verið hafði. Voru t. d. haldin 3 bridgemót, 6 tafimót og tvö innanhússfótboltamót, og voru þau öll vel sótt. Auk þess, er nú hefur verið drepið á, var fjöldi málefna, er stjórn Orators lét sig skipta á starfsárinu. Mætti þar nefna námskynningarferðir, úthlutun sæta í lestrarsölum, frumvarpið um máflytjendur og fleira. Sveinn Sveinsson 160

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.