Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Blaðsíða 8

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Blaðsíða 8
skal þó haga vinnu þannig, að verkamenn geti notið hvíldartímans samanlagt á þrem sólarhringum. Samkv. 29. gr. gilda sérákvæði um bifreiðastjóra, sem flytja fólk að staðaldri, og um stjórnendur véla, sem mönnum getur stafað sér- stök hætta af, en þeir skulu að jafnaði ekki hafa lengri vinnutíma en 12 tíma á sólarhring. Eins og að framan greinir miðast 28. grein laganna við verkamenn, en í annarri grein segir, að verkamaður í lögum þessum merki hvern þann mann, karl eða konu, sem vinnur utan heimilis síns í annars manns þjónustu. Ákvæði 28. greinar nær því til allra launþega, sem vinna utan heimilis í þjónustu annarra, og er hér því um almennt verndarákvæði að ræða. Rétt er að vekja athygli á því, að í lögunum er orðið verkamaður skilgreint mjög rúmt. 1 daglegu máli merkir verkamaður þá starfs- menn, sem vinna svokallaða verkamannavinnu, þ. e. vinnu sem starfs- svið stéttarfélaga verkamanna nær til, svo sem Dagsbrúnar, Fram- sóknar og Sóknar. 1 lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1988 er orðið verkamaður hins vegar notað um þá, sem lögin ná til, en þau ná almennt til launþega, sem ekki starfa í þjónustu hins opinbera. Samkv. framangreindum lögum nr. 23/1952 um öryggisráðstafanir á vinnustöðum, er hins vegar orðið verkamaður notað um alla launþega. Hér er um varasama þróun að ræða, þar sem sama orðið er notað í mjög mismunandi merkingum. Er þetta ekki síst óheppilegt, þar sem hér er um að ræða lög, sem ætla má, að launþegar og sérstaklega trún- aðarmenn stéttarfélaga kynni sér, enda er þeim nauðsynlegt að kunna nokkur skil á þeim lögum, sem um vinnuréttinn fjalla. Varðandi yfirvinnuskylduna er loks rétt að vekja athygli á 31. grein laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, þar sem segir, að starfsmönnum sé skylt að vinna þá yfirvinnu, sem yfir- boðarar telja nauðsynlégt. Þó er engum starfsmanni, nema þeim, er gegnir lögreglustörfum eða almennri öryggisþj ónustu, skylt að vinna meiri yfirvinnu í viku hverri en nemur þriðjungi af lögmætum viku- legum vinnutíma. Vinnuvernd opinberra starfsmanna varðandi yfir- vinnu er þannig allmiklu meiri en annarra launþega, en mjög fátítt mun þó vera, að opinberir starfsmenn eða stéttarfélög þeirra beri ákvæði þetta fyrir sig. Störf í þágu annarra vinnuveitenda. Þá verður að því vikið, hvort vinnuveitandi geti gert kröfu til þess, að starfsmaður vinni ekki í þjónustu annarra vinnuveitenda. Um slíkt 134

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.