Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Blaðsíða 9
er að sjálfsögðu ekkert almennt ákvæði í lögum, enda mundi þar vera
um að ræða of mikla skerðingu á atvinnufrelsi manna. Almenna reglan
er því sú, að starfsmönnum er heimilt að vinna í þjónustu annarra,
eftir því sem við verður komið. Sem kunnugt er, er þó að finna und-
antekningu frá þessari reglu, en hér er átt við bann við málflytjenda-
störfum lögfræðinga, sem starfa við embætti dómara, lögreglustjóra,
tollstjóra, ríkisskattstj óra, ríkissaksóknara eða í stjórnarráðinu, sbr.
reglur nr. 32/1971.
Hér má einnig benda á 2. mgr. 34. gr. 1. nr. 38/1954, en þar segir,
að áður en ríkisstarfsmaður stofnar til atvinnurekstrar, tekur við
starfi í þjónustu annars aðila en ríkisins gegn varanlegu kaupi eða
tekur sæti í stjórn atvinnufyrirtækis, beri honum að skýra viðkom-
andi stjórnvaldi frá því, sem síðan metur, hvdrt aukastarf það, sem
um ræðir, telst samrýmanlegt stöðu ríkisstarfsmannsins.
Þess ber að geta, að oft er kveðið svo á í ráðningarsamningum, að
starfsmaður skuldbindi sig til að vinna aðeins í þágu viðkomandi vinnu-
veitanda. Einnig finnast dæmi um slíkt í kjarasamningum, og má þar
nefna kjarasamning Verkfræðingafélags fslands við Reykjavíkurborg,
þar sem laun eru allmiklu hærri hjá þeim, sem skuldbinda sig til þess
að starfa aðeins í þágu Reykjavíkurborgar.
Undantekningar frá vinnuskyldunni.
Eins og að framan greinir er það meginskylda starfsmanns að skila
því verki, sem hann hefur skuldbundið sig til með ráðningu sinni í
starfið. En frá vinnuskyldunni eru hins vegar margar og veigamiklar
undantekningar.
Sjúkdómstilfelli.
Ein veigamesta undantekningin frá vinnuskyldunni eru veikindafor-
föll. Þar er meginreglan sú, að starfsmáður á rétt á að halda launum
sínum í ákveðinn tíma, ef til veikinda kemur. Með veikindaforföllum
er átt við, að starfsmaður geti ekki stundað vinnu sína á fullnægjandi
hátt vegna veikinda og/eða að það sé hættulegt eða óheppilegt fyrir
heilsu hans að gegna stai’finu að svo stöddu.
Veikindaforföll geta aðeins náð til starfsmannsins sjálfs. Þó má
sennilega jafna því til veikindaforfalla, ef smitnæmur sjúkdómur er
á heimili starfsmanns, sem veldur því, að hann þurfi að vera í sóttkví.
Hins vegar er það almennt ekki viðurkennt sem veikindaforföll
starfsmanns, ef hann getur ekki mætt til vinnu vegna veikinda á
heimilinu. Sem dæmi má nefna, að það veitir einstæðum foreldrum
135