Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Side 16
Barði Friðriksson hrl.:
SKIPULAG OG TILGANGUR
VINNUVEITENDASAMBANDS ÍSLANDS
Hinn 23. júlí 1934 komu fulltrúar frá 42 atvinnufyrirtækjum úr
Reykjavík og nági-enni saman til fundar í Oddfellow-húsinu í Reykjavík.
Á fundinum lagði Eggert Claessen hæstaréttarmálflutningsmaður
fram svofellda tillögu: „Ég legg til að stofnað verði hér á fundinum
almennt vinnuveitendafélag fyrir lsland.“ Á fundi þessum voru síðan
samþykkt lög fyrir Vinnuveitendafélag Islands, nú Vinnuveitendasam-
band Islands, og gengið að fullu frá stofnun þess.
Tæplega verður skipulag Vinnuveitendasambandsins rætt svo að
gagni sé, nema getið sé hins helsta um tilgang sambandsins. Um hann
fjallar 2. gr. sambandslaganna og kemur þar m. a. þetta fram um,
hver hann sé:
1. Að safna öllum vinnuveitendum landsins í skipulagsbundinn félags-
skap.
2. Að vinna að því, að ágreiningsmál vinnuveitenda og verkalýðs verði
leyst með friðsamlegum samningum, og koma í veg fyrir vinnu-
stöðvanir.
3. Að félagsmenn styðji hver annan með ráðum og dáð, þar á meðal
fjárhagslegum stuðningi, þegar vinnustöðvanir ber að höndum.
4. Að vera félagsmönnum til aðstoðar og leiðbeiningar um allt, er
snertir atvinnurekstur þeirra inn á við og út á við.
5. Að vera málsvari félagsmanna gagnvart almenningi og hinu opin-
bera og taka til meðferðar þjóðfélagsmál, sem snerta hagsmuni
félagsmanna, svo og önnur sameiginleg hagsmunamál.
6. Að vinna að þeim verkefnum, sem sambandinu að öðru leyti eru
ætluð í lögum þess og löggjöf landsins.
142