Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Side 21
Atvinnuleysistryggingas j óður
Félagsdómur
Kaupskrárnefnd
Kauplagsnefnd
Kj ararannsóknarnefnd
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissj óður verslunarmanna
Allir lífeyrissjóðir, sem stofnaðir voru skv. samningum 19. maí 1969
Ráðgjafarnefnd við rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins
Ráðningarstofa Reykj avíkurborgar
Rannsóknarnefnd iðnaðarins
Iðnþróunarráð
Yfirvinnumiðlunarnefnd
Verðlagsnefnd.
Helstu tengsl Vinnuveitendasambandsins við erlendar stofnanir eru
þessi: Vinnuveitendasambandið er aðali að fastanefnd Vinnuveitenda-
samtaka Norðurlanda, en sú nefnd kemur saman til fundar einu sinni
á ári. Þar eru lagðar fram skýrslur um það, sem gerst hefur í þeim
málum, er samtökin láta sig mestu varða, og rædd þau viðfangsefni,
sem efst eru á baugi og framundan eru. Þessir fundir eru haldnir til
skiptis á Norðurlöndunum, nú síðast hér í Reykjavík. Vinnuveitenda-
sambandið er einnig aðili að stofnun, sem heitir Business and Industry
Advisory Committee to OECD (BIAC). Eins og kunnugt er, er Island
aðili að ILO, International Labour Organization. Sú stofnun er byggð
upp af þremur aðilum, þ. e. samtökum vinnuveitepda, samtökum verka-
lýðs og ríkisstjórnum. Islenska ríkisstjórnin sendir tiltölulega sjaldan
nefndir á hin árlegu þing þessara stofnana. Þegar það er gert, á Vinnu-
veitendasamband Islands aðild að þeim.
147