Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Síða 40
Ragnar Aðalsteinsson hrl.:
UM FJÖLFÖLDUN VERNDAÐRA VERKA
Meðal ágreiningsefna um vernd höfundaréttar er áreksturinn
milli hagsmuna höfunda af fjárhagslegum nytjum verka sinna og
hagsmuna almennings af frjálsum afnotum birtra verka. Þeir sem
mæla með víðtækum heimildum til fjölföldunar verka án leyfis eða
gjalds rökstyðja afstöðu sína með því að mikilvægt sé að gera hug-
myndir sem allra aðgengilegastar fyrir almenning, ekki síst við
kennslu. Hinir, sem mæla gegn frjálsum afnotum í formi fjölföldunar,
rökstyðja afstöðu sína m.a. með því að ósanngjarnt sé að krefjast þess
að þeir sem láta okkur í té efni á sviði mennta og menningar geri það
án endurgjalds. Þá eru menn ekki á einu máli um það hvort og í hve
ríkum mæli fjölföldun veldur höfundum tekjutapi. Einkum á þetta þó
við um fjölföldun útgefinna ritverka. Bent er á að menn geti skrifað
niður tilvitnanir eða lagt þær á minnið ef bannað væri að taka afrit
með t.d. ljósritun. Þeir sem mæla með sem mestri takmörkun á rétti
til fjölföldunar benda á að fjölföldun komi í stað kaupa á bókum og
tímaritum, enda verði ekki saman jafnað ljósritun annars vegar og
eftirritun hins vegar, hvorki að því er varðar heimildargildi né hraða
í framkvæmd.
Sjónarmið hinna síðastnefndu, bæði efnahagsleg og siðferðileg, hafa
orðið ofan á í Vestur-Evrópu á síðari tímum. Rétt er þó að hafa í huga
sjónarmið sem hafa skotið upp kollinum meðal stjórnmálamanna, t.d.
í Svíþjóð ekki alls fyrir löngu, en þau g'anga í þveröfuga átt og vilja
draga úr vernd allra höfundaréttinda, einkum með þeim rökum að nú
sé svo komið að framlög til höfunda úr almannasjóðum séu orðin
svo ríkuleg að rétt sé að gera verk höfundanna að almannaeign, í
þeim skilningi að eftir birtingu þeirra geti hver sem er haft þau
fjárhagslegu afnot af þeim sem honum henta án nokkurs endurgjalds.
Þessi sjónarmið hafa ekki hlotið miklar undirtektir og eiga alltént ekki
við hér á landi, og er reyndar langt í land að svo geti orðið.
Enda þótt umræður um fjölföldun verndaðra verka hafi verið mikl-
246