Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Qupperneq 53
Iiá
Lögfræöingafélagi
íslands
SKÝRSLA STJÓRNAR
LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
Á AÐALFUNDI 5. NÓVEMBER 1985
Aðalfundur Lögfræðingafélags íslands hefur yfirleitt ekki verið fjölsóttur,
a.m.k. ekki hin síðari ár. í því skyni að örva fundarsókn er nú horfið að þvi
ráði að halda fræðafund strax að loknum aðalfundi.
Stjórn félagsins á því starfsári, sem nú lýkur, var þannig skipuð: Arnljótur
Björnsson, formaður, Guðrún Erlendsdóttir, varaformaður, Gesiur Jónsson,
Guðný Björnsdóttir, ritari, Lilja Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Tímarits lög-
fræðinga, Valgeir Pálsson, gjaldkeri og Þorgeir örlygsson. Stjórnin var kos-
in á aðalfundi 25. september 1984.
Á starfsárinu frá 25. september 1984 til 4. nóvember 1985 voru haldnir eftir-
taldir fræðafundir:
1. 24. október 1984. „Offentlig — privat ret.“ Framsögumaður var W. E.
von Eyben, fyrrverandi prófessor við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla.
Fundurinn var haldinn í samvinnu við lagadeild Háskóla íslands. Fund-
inn sóttu 61.
2. 6. nóvember 1984. „Réttarkerfið og fjölmiðlarnir." Framsögumaður var
Þór Vilhjálmsson, forseti Hæstaréttar. Á eftir framsöguerindinu voru
pallborðsumræður. í þeim tóku þátt auk framsögumanns þeir Björn
Bjarnason, aðstoðarritstjóri, Hrafn Bragason, borgardómari og hæsta-
réttarlögmennirnir Hörður Einarsson og Ragnar Aðalsteinsson. Fund-
inn sóttu 76.
3. 30. nóvember 1984. „Dómur Hæstaréttar frá 10. júlí 1984.“ Jón Steinar
Gunnlaugsson, hrl., fjallaði um dóm þennan, en I honum er dæmt um
nokkrar mikilvægar forsendur fyrir skaðabótum fyrir tjón vegna örorku.
Fundarmenn voru 80.
4. 29. janúar 1985. „Bætur fyrir alkalískemmdir í mannvirkjum.“ Hrafn
Bragason, borgardómari, flutti fyrirlestur um þetta efni. Fundinn sátu 50
manns.
5. 28. febrúar 1985. „The National Empowerments." Framsögumaður var
Charles L. Black, Jr„ prófessor við lagadeild Yaleháskóla. Framsögu-
erindið fjallaði um stjórnar- og löggjafarkerfi Bandaríkjanna, dreifingu
opinbers valds og valdajafnvægi. Lagadeild Háskóla íslands stóð að
fundi þessum ásamt félaginu. Fundarmenn voru 28.
259