Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Qupperneq 62
Ástæða er til að vekja athygli á þvl, að kandídötum ( lögfræði er heimilt að
sækja námskeið í kjörgreinum í III. hluta, ef aðstæður leyfa. Er heimilt að gefa
út vottorð um nám og próf kandídata að fullnægðum skilyrðum, sem lagadeild
setur.
8. ERLENDIR GESTIR
Hinn 24. október 1984 flutti próf. emer. W.E. von Eyben fyrirlestur í Lög-
bergi um „Offentlig — privat ret“. Var fyrirlesturinn haldinn á vegum laga-
deiidar og Lögfræðingafélags íslands.
Atle Grahl-Madsen, prófessor við lagadeild Björgvinjarháskóla, flutti hinn
23. janúar 1985 fyrirlestur um skilyrði þess, að flóttamönnum verði veittur
landvistarréttur á Norðurlöndum.
Hinn 28. febrúar 1985 hélt Charles L. Black, Jr., prófessor við lagadeild
Yale-háskóla, fyrirlestur um „The National Empowerments“. Fjallaði hann um
þætti úr bandarískum stjórnskipunarrétti. Fyrirlesturinn var haldinn I sam-
vinnu við Lögfræðingafélag íslands.
9. ORATOR
Á aðalfundi Orators, félags laganema, hinn 1. nóvember 1984 var Halldór
Halldórsson kosinn formaður félagsins. Varaformaður var kosinn Arnfríður
Einarsdóttir og ritstjóri Jóhann R. Benediktsson.
Arnljótur Björnsson
SKÝRSLA UM LAGASTOFNUN HÁSKÓLAÍSLANDS
29. FEBRÚAR 1984 — 28. FEBRÚAR 1985
Starfslið:
Þessir kennarar í fullu starfi störfuðu við Lagastofnun 1984-1985: Arnljótur
Björnsson, Björn Þ. Guðmundsson, Gaukur Jörundsson, Guðrún Erlendsdóttir,
Gunnar G. Schram, Jónatan Þórmundsson, Páll Sigurðsson, Sigurður Líndal,
Stefán Már Stefánsson og Þorgeir Örlygsson.
Stjórn:
Á fundi lagadeildar 27. febrúar 1985 voru þessir menn kosnir í stjórn stofn-
unarinnar til næstu tveggja ára: Gaukur Jörundsson, Guðrún Erlendsdóttir,
Jónatan Þórmundsson og Sigurður Líndal. Stjórn Orators, félags laganema,
hefur tilnefnt Halldór Halldórsson, stud. jur., í stjórnina. Sigurður Líndal var
kosinn forstöðumaður á stjórnarfundi stofnunarinnar 28. febrúar 1983. Stjórn-
in hélt tvo fundi á tímabilinu 29. febrúar 1984 — 28. febrúar 1985. Ársfundur
var haldinn 28. febrúar 1985.
Rannsóknir 1984-85:
Rannsóknar- og ritstörf kennara í fullu starfi við lagadeild, sem teljast
starfa við Lagastofnun Háskóla íslands, voru sem hér segir:
268