Tímarit lögfræðinga - 01.10.1989, Side 23
færslu barna. Þetta er ekki óeðlilegt þar sem lagaákvæði þessi tengj-
ast framfærslu barna, en að auki er það í samræmi við venju að ræða
þau í þessu samhengi.2 Athyglinni verður einkum beint að framfærslu-
skyldu foreldris sem ekki hefur forsjá barns og rétti forráðamanns
barns til að fá greiddan framfærslueyri með barni samkvæmt 14. gr.
1. 67/1971 um almannatryggingar (atl.). Framfærslueyrir í fyrrnefnda
tilfellinu nefnist meðlag, en í hinu síðara barnalífeyrir. Það er eðlilegt
að umfjöllun um meðlag annars vegar og barnalífeyri hins vegar fari
saman, þar sem um hliðstæður er að ræða í þeim skilningi að barna-
lífeyrir kemur í stað meðlags þegar ekki er um meðlagsskylt foreldri
að ræða eða geta annars eða beggja foreldra til að standa undir fram-
færslu barns er skert af nánar tilgreindum ástæðum.
1.2. Hugtakið „valdsmaður“
Hugtakið „valdsmaður“ kemur víða fyrir í lögum þar sem fjallað
er um framfærslu barna, án þess að merking þess sé skýr.3 Þegar
2 Sjá t.d. Ármann Snævarr: Barnaréttur, Reykjavík 1987, s. 82.
3 Sbr. t.d. 1. mgr. 15. gr„ 3. mgr. 16. gr„ 2. mgr. 17. gr„ 2. mgr. 19. gr„ 1. mgr. 20. gr„ 21.
gr„ 22. gr„ 1. og 2. ntgr. 25. gr„ 1. og 2. mgr. 26. gr„ 1. mgr. 27. gr„ 1. og 2. mgr. 28. gr.
og 3. mgr. 29. gr. bl. í 1. mgr. 29. gr. bl. er talað um yfirvaldsúrskurð og er þar átt við
úrskurð valdsmanns; 1. mgr. 9. gr. 1. 20/1923 um réttindi og skyldur hjóna og 1. mgr. 10.
gr. fl. í 9. gr. þeirra laga er talað um yfirvald og sama á við um 45. gr„ 1. mgr. 50. gr.
og 2. mgr. 52. gr. 1. 60/1972. Orðið kemur víðar fyrir i lögum, en þau ákvæði sem hér
hafa verið talin lúta að framfærslu barna með einum eða öðrum hætti, nema þau síðast-
töldu sem fjalla um greiðslu framfærslueyris milli hjóna innbyrðis eftir að leyfi til
skilnaðar að borði og sæng hefur verið gefið út.
Davíð Þór Björgvinsson lauk B.A.-prófi í sagn-
fræði og heimspeki frá heimspekideild Háskóla
íslands 1982, embættisprófi í lögfræði frá laga-
deild sama skóla 1985 og LLM-prófi frá Duke
University School of Law í Bandaríkjunum 1987.
Davíð Þór er settur dósent við lagadeild Há-
skóla íslands. Kennslugreinar hans eru á sviði
sifjaréttar og samanburðarlögfræði.
165