Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1995, Síða 10

Ægir - 01.01.1995, Síða 10
Leiðrétt ættartala í 12. tbl. Ægis 1994 var í vibtali við Auðunn Auðunsson fyrrum tog- araskipstjóra drepið lítillega á ætt hans og uppruna. Nafn móður hans Vilhelmínu var rangt stafsett, Ólafía elsta systir hans var rangnefnd Ólafur og af greinarmerkjasetningu mátti ráða að Pétur Guðjón yngsti bróðirinn væri tveir menn. Það eru gömul sannindi að þeir sem fást við ritstörf skipta meb sér verkum. Sumir koma villum á gang meban aðrir hrekja þær sömu villur og leiðrétta. Hafa svo hvorir tveggju nokkuð að iðja. væri slæmt fyrir ímynd okkar sem þjóðar. Það skiptir miklu máli að nýta hana til manneldis og þá komum vib aftur ab því hve illa floti okkar er útbú- inn." Breyttir tímar Hafa orðið miklar tœkniframfarir í nótaveiði síðan kraftblökkin og asdikið byltu veiðunum seint á sjötta áratugn- um? „Það hafa margar breytingar orðið og þetta er allt orðið sterkara og öfl- ugra og þolir meiri átök, sterkar hliðar- skrúfur og fleira. Nýjasta breytingin er svokölluð fallhlíf sem er notuð til að draga nótina út og leysir gamla sleppi- krókinn af hólmi. Þetta er uppfinning frá frændum okkar og vinum í Noregi sem er mikil framför. Nú er kominn vír í staðinn fyrir það sem kallab var bjánaband í gamla daga." Eins og pú lýsir þessum síldveiðum núna, þar sem hver dagur skiptir máli og verksmiðjurnar stýra veiðunum að einhverju leyti, má skilja að síldveið- amar hafi misst þann sjarma sem þœr höfðu. Er þetta rétt? „Það var auðvitað óskaplega spenn- andi að veiða vaðandi síld. Þú vissir aldrei fyrr en pokinn lokaöist hvort hún var inni eða ekki. Mér finnst þetta þó enn hafa sinn sjarma þrátt fyrir allt." O Húni HU 1 á leið inn til Siglufjarðar 1958 með fullfermi, 100 tonn af síld. Húni II, smíðaður 1963 á Akureyri, í reynslusiglingu á Eyjafirði. Vomð þið sáttir við verðið sem fékkst fyrir síldina í haust? „Þessu er erfitt fyrir mig að svara. Auðvitað erum við aldrei sáttir við verðið en meb þessu mikla magni er hægt að stunda þetta með sæmilegri afkomu. Það ríður á að víkja aldrei frá veiöunum og í haust stoppaði skipið aldrei nema í brælum. Við höfðum bara skiptimenn og menn gátu tekið sér frí en þab var aldrei stoppað marga daga í einu. Við gerðum þetta líka á loðnuver- tíðinni í fyrra og það skipti miklu máli því tíminn er dýrmætur." Nú fengu menn forsmekkinn af veið- um á norsk-íslenskri síld í sumar og það liggur í loftinu að meiri veiði verði leyfð nœsta sumar eða í náinni framtíð. Hvemig leggst það í þig? „Við megum náttúrulega ekki haga okkur eins og villimenn. Það verður að semja um þetta og það gengur ekki að senda stóran flota á miðin og moka þessum gæðafiski upp í bræðslu. Þá væri sagan ab endurtaka sig og það 10 ÆGIR JANÚAR 1995

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.