Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1995, Side 11

Ægir - 01.01.1995, Side 11
Kœru viðskiptavinir íMAN\ I Baw 1 'law 1 M.A.N. - B&W dísilvélar sf. Afítækni hf. Allt annað óbreytt, sama heimilisfangið, sömu símanúmerin, sama myndsendinúmer og sama góða þjónustan Afltækni hf. Barónsstíg 5 -101 Reykjavík • Símar 55 11280 og 55 11281 • Fax 55 21280 Heimilt að veiða á Hatton Bank Meö fullgildingu hafréttarsáttmálans er íslend- ingum heimilt aö stunda veiöar á Hatton Bank því óheimilt veröur aö vera meö 200 mílna fiskveiöi- lögsögu í kringum kletta eins og Rockall þar sem enginn býr. Þetta fullyröir Sveinn Hjörtur Hjartar- son starfsmaöur LÍÚ í nýjasta hefti af Útveginum, fréttabréfi samtakanna. Togaramir Rex og Óttar Birting reyndu veiöar á Hatton Bank á árinu 1994 en hættu því vegna af- skipta bresku strandgæslunnar sem færði Rex til hafnar og sektaði. Á þessum slóðum eru fiskimið þar sem fæst stinglax, blálanga, langhali, karfi og gjölnir. Þaö er einkum stinglaxinn sem menn hafa sóst eftir en stinglax er veiddur og nýttur sunnar- lega í Evrópu og árleg veiði Portúgala hefur verið um 4600 til 6865 tonn frá 1985. Stinglax þykir góður matfiskur og möguleikar taldir góðir á að vinna honum aukinn markað meöal þjóða sem borða mikinn fisk. Stinglax veiöist á 180-1600 metra dýpi og er talið að mikið sé af honum undan ströndum íslands, einkum fyr- ir sunnan, vestan og suðvestan land. (Útvegurinn des. 1994) Rússneskir vísinda- menn keyptir Alþjóðavelferðarsjóður dýr- anna hefur boðið rússneskum vísindamönnum 30 dollara í laun á mánuði gegn því að þeir noti aldrei seli við tilraun- ir af neinu tagi. Einkum hefur sjóðurinn beint tilboðum sín- um til vísindamanna við haf- rannsóknastofnanir og sem eru nú þegar að vinna að rann- sóknum sem snerta selveiðar og útbreiðslu seia. Talið er að nokkrir vísindamenn hafi þeg- ar gengið að tilboði sjóðsins því 30 dollarar eru mikið fé á rússneskan mælikvarða. Norskir vísindamenn eru fokvondir vegna þessa máls en þeir hafa unnið að selarann- sóknum í samvinnu við rúss- neska kollega sína. (High North News des. 1994) Um hvaö hugsa hvalir? Jon Lien prófessor í St. John á Nýfundnalandi hefur rannsakað hegðun hvala. Hann dregur mjög í efa kenningar manna um að hvalir séu gáfaðri en aðrar skepnur. Hann bendir á að menn ein- blíni nokkuð á heilastærð hvalsins. „íslandssléttbakurinn, svo dæmi sé tekið, er með fjögur kíló af heila en 1000 kíló af eistum. Ef hann er að hugsa þá vit- um við vel hvað hann er að hugsa." Lien segir að deilan um hvalavernd minni meira á trúarbragðadeilur en nokkuð annað. (High North News des. 1994) ÆGIR JANÚAR 1995 1 1

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.