Ægir - 01.01.1995, Side 12
SJÁVARSÍÐAN
VIÐ NÁNARI ATHUGUN
14 sinnum samið, 4 sinnum lög
í kjölfar lagasetningar á verkfall sjómanna í janúar 1993 var gerður samningur
í lok árs sem síðan var felldur bæði af sjómönnum og útgerðarmönnum. Nú eru
engar viðræður í gangi en sjómannasambandið er að afla sér umboða frá hinum
ýmsu félögum og eftir formannafund 19. janúar er reiknað með að samningavið-
ræður hefjist á ný.
„Verkfall er alltaf neyðarbrauð, notað til þess að knýja menn að samninga-
borði," sagði Hólmgeir Jónsson framkvæmdastjóri Sjómannasambands íslands í
samtali við Ægi. Hann sagði að lagasetning á síðasta verkfall hefði síður en svo
dregið úr baráttuþreki sjómanna í þessum efnum.
„í síðasta verkfalli var tekist á um ákveðna hluti og þá verðum við að fá í lag
hvernig sem við förum að því. Við verðum að fá nýja samninga og þegar við höf-
um fengiö umbob er hægt að boða verkfall meb þriggja vikna fyrirvara."
Samkvæmt lauslegri samantekt Ægis hafa sjómenn 18 sinnum farið í verkfali
frá 1916. 14 sinnum hefur verið samið án afskipta stjórnmálamanna en 4 sinnum
hefur verkfalli lokið meb lagasetningu.
ANNÁLL
1916. Hásetafélagið samþykkir 27.
apríl að boða til verkfalls þegar í stað
vegna deilna við útgerðarmenn um
skiptingu lifrarhlutar. Verkfallinu lauk
síðan 11. maí þegar útgerðarmenn og
hásetar sömdu um hækkun lifrarverðs
úr 35 krónum í 60 krónur.
1923. Sjómenn neita að vinna eftir
nýjum taxta útgerðarmanna sem felur í
sér allmikla launalækkun. Togaraflotinn
stöbvast smátt og smátt vegna málsins.
Hinn 11. júlí kemur til harðvítugra
átaka í Reykjavíkurhöfn. Sjómenn báru
sigur af hólmi en deilunni lauk ekki fyrr
en með samningi 22. september.
1929. Sjómannaverkfall hófst í byrj-
un janúar og stób til loka febrúar er því
lauk með samningum.
1935. Sjómannaverkfall hefst í
miðjum desember og lýkur með samn-
ingi í lok janúar 1936.
1938. Verkfall sjómanna hófst í
byrjun janúar og lauk með lagasetn-
ingu um miðjan mars.
1949. Verkfall undirmanna á togur-
um stendur framan af vetri en lýkur
með samningum í lok mars.
1950. Verkfall frá 1. júlí til 6. nóv-
ember á togurum.
1952. Verkfall togarasjómanna
stendur í hálfan mánuö.
1958. Sjómenn aflýsa verkfalli með
samkomulagi við ríkisstjórn um stofn-
un lífeyrissjóös.
1962. Verkfall hófst á togaraflotan-
um 10. mars og stób til 5. ágúst.
1969. í ársbyrjun fóru sjómenn í
verkfall sem stóð í rúman mánuð.
Samningaviðræður báru engan árangur
og 17. febrúar setti ríkisstjórnin lög
sem batt endi á verkfallið.
1971. Verkfall á togurum stóð frá 6.
janúar til 1. mars er samningar tókust.
1979. Farmannaverkfall stóð frá því
25. apríl fram til 19. júní þegar því var
lokið með setningu bráðabirgðalaga.
1982. Verkfall sjómanna hófst milli
jóla og nýárs 1981. Samningar náðust
um miðjan janúar án teljandi afskipta
ríkisvaldsins.
1985. Verkfall sjómanna hófst 17.
febrúar. Samningar tókust án afskipta
ríkisvaldsins og sömdu yfirmenn 1.
mars en undirmenn viku seinna.
1986. Farmenn fara í verkfall í lok
desember. Verkfallinu lauk í febrúar
1987 með samningum.
1987. Verkfall undirmanna á fiski-
skipum hófst 1. janúar. Samningar tók-
ust 17. janúar.
1993. Sjómenn fara í allsherjarverk-
fall 1. janúar sem er lokið með bráða-
birgðalögum ríkisstjórnar 14. sama
mánaðar.
ANNÁLL
VH Nokkur íslensk fyrirtæki
Hfl auka sókn sína á markaði í
Suður-Ameríku mb þátttöku í
mikilli sjávarútvegssýningu, Expo
Pesca í Santiago í Chile.
■■■ 168 manns sagt upp hjá
mMa Fiskiðju Sauðárkróks vegna
endurskipulagningar hjá fyrirtæk-
inu sem meðal annars hyggst
setja upp nýja og fullkomna
vinnslu- og pökkunarlínu fyrir
frosinn fisk.
Ákveðið að auka síldarkvót-
ann um 10 þúsund tonn og
sýnt að hann verði 130 þúsund
lestir. Þetta er mesta síldveiði sem
leyfð hefir verið hér við land frá
því ab síldveiðar hrundu 1968.
■i Bergur-Huginn hf. í Vest-
Bai mannaeyjum og Skag-
strendingur hf. á Skagaströnd
stofna með sér fyrirtæki sem
vinna á að loðnufrystingu á kom-
andi loðnuvertíð. Þrír frystitogar-
ar, Vestmannaey VE, Arnar og
Örvar HU, verða notaöir vib fryst-
inguna og munu þessi fljótandi
frystihús ab líkindum liggja á
Seyðisfirði.
M Skagstrendingur hf. íhugar
■H að fela Sölumiðstöð hrab-
frystihúsanna að annast sölu af-
urða fyrirtækisins. Fram til þessa
hefur eigið fyrirtæki Skagstrend-
ings annast sölu afurðanna.
PM Tilraunaveiðar á humri frá
■■■ Höfn í Hornafirði, sem ekki
hafa verið leyfðar ábur á þessum
árstíma, ganga illa vegna slæmra
gæfta. Humarinn er fluttur fersk-
ur utan með flugi.
VH Vaxandi brögð eru að því
Ifil að Rússar neiti að selja ís-
lendingum fisk og bera við banni
innlendra stjórnvalda við slíkri
sölu vegna Smuguveiða íslend-
inga í Barentshafi. Rússnesk
stjórnvöld vilja ekki kannast við
að hafa sett á slíkt bann og grun-
ur leikur á að Norðmenn hafi gert
leynisamninga við Rússa um
12 ÆGIR JANÚAR 1995