Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1995, Qupperneq 22

Ægir - 01.01.1995, Qupperneq 22
hlutafjáraukningar er hlutur hennar kominn í 35%. Lífeyrissjóðir, olíufélög, tryggingafélög, ýmsir sjóðir og einstaklingar eru meðal stórra hluthafa en fjöldi smárra hluthafa meðal starfsfólks er mikill og við sameining- una var hverjum starfsmanna afhent 2000 króna hlutabréf. Hvar er lýðræðið? Nú eru ýmsar blikur á lofti í náinni framtíð. Samn- ingar sjómanna voru felldir og samningar landverka- fólks verða lausir í vetur. Er svigrúm í þessum rekstri fyrir kauphœkkun? „Hjá þessu fyrirtæki eru 100 sjómenn og ég veit að níu tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samningana á Akranesi og felldu þá. Þarna er eitthvað athugavert við lýðræðið. Við erum háðir því verði sem við fáum erlendis og svigrúm er ekki mikið. Það er mikilvægara en nokkuð annað að halda þeim stöðugleika i efnahagsumhverfi okkar sem við höfum notið undanfarið. Afkoma margra sjávarútvegsfyrirtækja hefur batnað þrátt fyrir mikla skerðingu á aflaheimildum. Til þess að ná þess- um árangri hefur greinin gengið í gegnum verulega uppstokkun og hagræðingu í rekstri og þannig sýnt mikla aðlögunarhæfni að nýjum aðstæðum. Það er því mjög mikilvægt að stöðugleiki ríki áfram í þjóðfé- laginu til þess að fyrirtækin nái að byggja upp eigin- fjárstöðu sína." Um þessar mundir er mikið rœtt um fiskverð og áhrif fiskmarkaða á verðið. Sjómenn vilja að allur fiskur fari á markað til þess að tryggja rétt markaðsverð og telja ófcert að útgerð og fiskvinnsla semji við sjálf sig um verðið. Haraldur Böðvarsson hf. aflar eigin hráefnis og setur því ekki aflann á markað. Fiskvinnsla er stóriðja „Það sem frystihúsin geta borgað er í föstum skorö- um. Það er bundið við markaðsverð á hverjum tíma. Laun og hráefniskostnaöur eru hátt í 75% af lokaverði. Við reynum aö stýra okkar vinnslu og veiðum með þaö fyrir augum að hámarka framlegð beggja þátta. Ég get ekki séð að það sé hægt að reka fiskvinnslu með því að reiða sig alfarið á fiskmarkaðina. Fyrirtækin á Akranesi hafa frá upphafi þurft að treysta á sjálf sig með hráefni. Tekjur sjómanna byggjast á því afla- magni sem þeir geta veitt og því verði sem þeir fá og við höfum kappkostað að skipin þurfi ekki að liggja bundin við bryggju." Má halda því fram að þau fyrirtœki sem eru í þessari aðstöðu séu jafnframt þau sem standa best í dag? „Það er augljóst. Þetta er stóriðja og verður best rek- in sem slík. í framtíðinni verður að reka hana með hagnaði og greiða arð. Annars eru menn búnir að vera og atvinna hundruða manna í óvissu." O Nýtt nótaskip fyrir 780 milljónir Nýlega var afhent nýtt glæsilegt nótaveiði- og fjölveiðiskip til nýrra eigenda á írlandi. Skipið var smíðað á 11 mánuðum hjá Simek A/S í Flekkefjord í Noregi og kostaði um 780 millj- ónir íslenskra króna. Skipið um 1000 tonn, með níu sjókæli- tönkum, samtals 1523 rúmmetra stórum. Það ber nafnið Sheanne og fór beint á makrílveiðar. Sheanne er 59,6 metra löng, með Caterpillar 3612 aðalvél og hliðarskrúfum aftan og framan. (Fishing News des. 1994) Mannætufiskar í Genesaret-vatni? Nokkurt fjaðrafok hefur orðið í ísrael eftir að ný fisktegund fannst í Genesaret-vatni. Svo virðist sem um sé að ræða af- brigði af piranha-fiski sem venjulega finnst í ferskvatni í Suð- ur-Ameríku. Sumar tegundir piranha eru illræmdar fyrir grimmd og fara um í torfum og eru sagðar geta étið stórgrip upp til agna á örfáum mínútum. Genesaret-vatn, þar sem Frelsarinn gekk forðum á vatninu og stundaði dagróðra með lærisveinum sínum og áhangend- um, er með vinsælustu ferðamannastöðum í ísrael. Hafa menn miklar áhyggjur af meintri tilvist mannætufiska í vatn- inu og útiloka ekki að þeim hafi verið komið þar fyrir af mannavöldum gagngert til þess að klekkja á ísraelsmönnum. (Fiskaren des. 1994) Þrándur í Götu tekinn í landhelgi Færeyski togarinn Þrándur í Götu var tekinn við meintar ólöglegar veiðar í norskri lögsögu og færður til hafnar á Máley af strandgæsluskipinu Senju og þyrlu strandgæslunnar. í lest- um togarans voru 350 tonn af makríl en eftir að hafa rannsak- að afladagbækur togarans komust norsk yfirvöld að þeirri nið- urstöðu að Þrándur hefði veitt að minnsta kosti 600 tonn með ólöglegum hætti í norskri lögsögu síðan í september 1994. í kjölfarið var skipið dæmt í 5,4 milljóna norskra króna sekt. Þrándur í Götu er 2300 tonna úthafsveiðiskip, eitt hið stærsta sem Færeyingar eiga. Þetta er ein hæsta sekt sem Norð- menn hafa dæmt sökudólg í fyrir landhelgisbrot. (Fiskeri Tidende des. 1994) Troll úr köngurlóarvef? Amerískir vísindamenn segjast hafa náð valdi á að fram- leiða með hjálp gerla prótein eins og þau sem köngurlóarvefur er gerður úr. Vefur þessi er í eðli sínu eitt sterkasta efni í heim- inum þótt hann sýnist hismi. Takist mönnum að ná valdi á því að spinna þykkari þráð úr efninu en köngurlóin sjálf gerir við eðlilegar aðstæður opnast ótal möguleikar til notkunar. Kannski verða troll og nætur framtíðarinnar gerð úr sama efni og köngurlóarvefur. (Fiskaren des. 1994) 22 ÆGIR JANÚAR 1995

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.