Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 7
Strandveiðimenn við IMorður-Atlantshaí
Sameiginleg samtök
stofnuð í haust?
„yrði sterkt afl,“ segir framkvæmda-
stjóri Landssambands smábátaeigenda
Á sí&asta aðalfundi Landssambands
smábátaeigenda var samþykkt að
reynt yrði að stofna samtök strand-
veiöimanna við Noröur-Atlantshaf
og telur Örn Pálsson, framkvæmda-
stjóri LS, að margt bendi til að þessi
samtök komist á í haust.
Eins og sagt var frá í síðasta tölu-
blaði Ægis fóru framkvæmdastjóri og
formaður Landssambands smábátaeig-
enda til funda á Nýfundnalandi nýver-
ið vegna verðlækkunar vestra á grá-
sleppuhrognum og bar samstarfið við
Kanadamenn góðan árangur. Þetta
telja smábátasjómenn sýna hvaða
áhrif sameiginleg samtök strandveiði-
manna geti haft þegar bein hagsmuna-
mál sjómanna þjóðanna við Norður-
Atlantshaf eru uppi.
Örn segir að í desember síðastliðn-
um hafi farið fram viðræður við
Kanadamenn um stofnun samtaka af
þessu tagi og kom þá fram mikill vilji
þeirra til að Kanada, ísland, Grænland,
Færeyjar og Noregur myndi þessi sam-
tök.
„Með samtökum af þessu tagi yrði
til gífurlega sterkt afl og allir þessir að-
ilar hafa sama sjónarmið, þ.e. að
grunnslóðina eigi að nýta af smábát-
unum. Það em mörg sameiginleg
hagsmunamál smábátasjómanna í
þessum löndum, t.d. markaðsmál,
tryggingamál og margt annað. Einnig
gætu komið upp stærri mál, t.d. ef
togarar fara að sækjast eftir rýmri
heimildum innan landhelgi, nú þegar
flestar „smugur" úthafanna eru að lok-
ast. Þá er eins gott að vera búnir að
undirbúa vel báráttuna ef sú staöa
kæmi upp. Það yrði sameiginleg bar-
átta og þá gott aö hafa afl eins og þessi
samtök að baki. í málinu meö grá-
sleppuverðið í Kanada þá held ég að
það hefði ekki verið jafn auðvelt fyrir
okkur að fara til viðræðna við Kanada-
mennina ef ekki hefði verið búið að
ræða um þessi samtök," sagði Örn.
Smáfiskaskilju fyrir-
tækisins EX-it ehf. vel tekið
Fyrirtækið EX-it ehf. á Sauðar-
króki setti nú í byrjun sumars á
markað nýja smáfiskaskilju , EX-it
60 Stundaglasið. Skiljan hefur
undanfarin tvö ár verið í þróun og
reynslu, bæði hjá Hafrannsókna-
stofnun og togurum og fékk hún í
framhaldinu viðurkenningu til notk-
unar hér við land.
Jóhannes Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri EX-it, segist
ánægður með þær viðtökur og
þann áhuga sem skiljunni hafi ver-
ið sýndur á markaðnum en í sum-
ar reyna mörg skip þennan búnað
við landið. Skiljan er gerð fyrir
þorsk, ýsu og ufsaveiðar og fram-
leiðir EX-it tvær stærðir skiljunnar.
Jóhannes segir stefnuna að halda
þróun áfram og er nú á teikniborð-
um hjá fyrirtækinu útfærsla fyrir
rækjuveiðar.
„Reynsla Hafrannsóknarstofn-
unar sýndi að skiljan vann mjög
vel og þar sem áður þurfti að loka
svæðum var hægt að hafa opið.
Þeir sjómenn sem við höfum verið
í sambandi við eru ánægðir og
telja að skiljurnar séu komnar til
að vera og þær séu framtíðin í
veiðunum," segir Jóhannes.
Vel geymt
i í Sæplast keri
Kerin frá Sæplasti eru þrautrej'nd framleiðsla, miðuð við þarfir
markaðar sem krefst styrks, góðrar endingar og hreinlætis.
Hráefnið og afurðin eru örugglega vel geymd í keri frá Sæplasti.
Sæplast hf • 620 Dalvík • Sfmi: 460 5000 • Grænt núrncr: 800 5080 • Fax: 460 5001
ÆGIR 7