Ægir - 01.07.1997, Síða 19
Gera þarf vísindalega úttekt
Guðfinna telur tímabært aö gera vís-
indalega úttekt á störfum sjómanna,
fjarverum frá heimilum, áhrifum á fjöl-
skyldulíf og svo framvegis. Þannig megi
sjá hvernig störf sjómanna hafi breyst í
áranna rás og hvaða áhrif lengri útiver-
ur hafi. Einnig hvaða áhrif betri aðbún-
aður skipanna hafi á sjómenn en glögg-
lega komi fram hjá sjómönnum að þeir
telji batnandi aðbúnað í skipunum
mjög til bóta.
„Mér finnst nauðsynlegt að gera slíka
úttekt. Hvað varðar langar útiverur þá
kemur skýrt fram hjá sjómönnum að
þeim finnst gjarnan erfitt þegar túrinn
er kominn yfir ákveðna lengd og sér-
staklega ef hann iengist
skyndilega frá því sem
ákveðið hafði verið. Þetta
gerist oft þegar fiskirí glæðist
undir lok túra. Sjómennirnir
segja slíkt geta reynt á þolrif-
in og það sama segja eigin-
konurnar í landi. Oöryggið
um hvenær skipin eru í
landi valda þannig álagi og
gera til dæmis að verkum að
fólk getur ekki skipulagt
hlutina."
Einstaklingsbundið hve
mikð álag fólk þolir
Þol manna gagnvart álagi
segir Guðfinna að sé mjög
mismunandi eftir einstak-
lingum og þannig þoli menn
misvel langar útiverur. Að
sama skapi þoli samband innan fjöl-
skyldna og hjónabönd þessar aðstæður
misvel en Guðfinna segir þó að þegar
fjarverur séu orðnar 6-8 vikur þá sé orð-
in áleitin spurning hvaða toll slíkt taki
af fólki. En telur Guðfinna, miðað við
samtöl sín við sjómenn, að ströng
ákvæði ætti að setja um hversu lengi sé
heimilt að halda mönnum á sjó?
„Ég held að það væri mjög mikilvægt
að sjómennirnir fái sjálfir að segja til
um hvernig þeir vilji hafa þessi mál
áður en farið yrði að setja einhliða regl-
ur. Sjómennirnir hafa reynsluna og geta
best sagt til um sjálfir hvab er skynsam-
legt í þessum efnum."
Hlutur yfirmanna
skipanna stór
Gubfinna segir að yfirmenn á skipun-
um þurfi að vera búnir samskiptahæfni
og þekkingu á vinnusálfræbi þannig að
þeir geti tekið á málum gagnvart sínum
undirmönnum um borð.
„Yfirmaður er alltaf mikilvægur og
ekki síst í þessu starfi. Hann þarf að
valda samskiptunum um borð og hafa
samskiptahæfileika. Hann þarf oft að
vera ákveðinn en líka að geta tekiö á
deilumálum og kunna að hrósa mönn-
um fyrir vönduð vinnubrögð þegar vel
gengur. Ýmis mál geta komiö upp, t.d.
rigur milli hópa um borð eða ef til vill
ósætti milli tveggja starfsmanna. Slíkt
getur haft áhrif á ailan hópinn og and-
rúmsloftið um borð. Það getur oft skipt
miklu máli hvernig er tekið á sam-
skiptamálum og ekki síst vegna þess að
þeir geta ekki snúið sér neitt annað
heldur verða að spila úr sínum aðstæb-
um meðan skipin eru úti á sjó. En það
er mjög misjafnt eftir áhöfnum hversu
mikil samstaðan er um borð og þá
skiptir töluvert miklu hvort um er að
ræba áhafnir sem hafa verið lengi sam-
an eða áhafnir þar sem eru mikil skipti
á mönnum."
Hlutverk eiginkvennanna stórt
Guðfinna telur að hlutur eiginkvenna
sjómanna sé mjög mikilvægur í þjóbfé-
lagsumræðunni þegar rætt er um líf og
störf sjómanna. Hún segir að gildi sjó-
mennskunnar sé ótvírætt fyrir samfé-
lagib og hvernig sé staðið að henni
hljóti að skipta verulegu máli fyrir þjób-
ina. Þar koma konurnar inn sem mikil-
vægur hlekkur því fyrir þá sjómenn sem
eru fjölskyldumenn hlýtur að skipta
sköpum hvernig fari saman að vera sjó-
maður og fjölskyldumaður. Ef ekki ríki
visst jafnvægi í lífi sjómannsins sé
hætta á að eitthvað geti farið úrskeiðis
hjá fjölskyldunni. Hluti af námskeiöi
Sálfræbistöðvarinnar var að efla sjálfs-
styrkingu og auka á ánægjuleg sam-
skipti í sjómannsfjölskyldunni. Konurn-
ar skynja stöðu sína mjög
mismunandi eftir því hvort
þær eru meb lítil börn eða
stálpuð börn og unglinga.
Stundum geta þær staðið
næsta aleinar með heimilið
og verið heilu vikurnar eins
og einstæbar mæbur. Guð-
finna bendir á ab í blaðavið-
tali hafi eiginkona sjómanns
með börn sagt að sér liði á
köflum eins og einstæðri
móður.
Oft er talað um tíða skilnaði
meöal sjómanna og Guð-
finna kannast við þær
goðsagnir í þjóöfélagsum-
ræbunni. Hún segist hins
vegar engan veginn sann-
færð um að slíkt sé algengara
meðal sjómanna en í öbrum stéttum.
„Það er oft talað um fleiri skilnabi hjá
sjómönnum en öbrum og að börn sjó-
manna eigi erfiðara en börn annarra. Ég
held að þetta sé ekki endilega rétt og
það þarf að taka marga aðra þætti inn í
myndina til að geta varpað ljósi á svona
staðhæfingar. Við höfum heyrt á þess-
um námskeiðum ab fólk er sárt yfir
svona fordómum í þjóðfélaginu í garð
sjómannafjölskyldna en sem betur fer
er umræðan að verða opnari í þjóðfé-
laginu fyrir stöðu sjómanna. Að mínu
mati á hún eftir að vaxa mjög á næstu
árum og þar með skilningur á þeim
störfum sem sjómenn sinna."
Miklu skiptir, að mati Guðfinnu Eydal, að yfirmenn skipa liafi góða
stjórn á vinnunni um borð og hafi til að bera hæfileika til
mannlegra samskipta.
ÆGIR 1 9