Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 22
þyngdaraukniningu og 400 þús. tonna
hrygningu í vertíöarlok. Vegna blönd-
unar kynþroska- og ókynþroska loðnu
á útbreiðslusvæðinu meðan á mæling-
unum stóð er líklegt að stærð hrygn-
ingar- og veiðistofns sé eitthvað of-
metinn. Var því lagt til og það sam-
þykkt að heildarkvótinn á vertíðinni
1996/1997 yrði 1600 þús. tonn en það
er í samræmi við fyrri spár um leyfi-
legt aflamark.
Það sem einkenndi sjávarástandið í
október - nóvember 1996 var nokkurt
innstreymi hlýsjávar norður fyrir land
og fyrir Norðurlandi gætti áhrifa þess
austur fyrir Langanes.
Fyrir Austurlandi var sjávarhiti
fremur hár og kaldur Austur íslands-
straumurinn langt undan.
Greinilega var sjávarástand í tals-
verðum bata miðað við þann mikla
kulda sem einkenndi ástand sjávar við
ísland vorið og sumarið 1995.
Þar sem haustmæling á loðnustofn-
inum þótti takast vel að þessu sinni og
niðurstöðurnar voru mjög nálægt því
sem spáð hafði verið var ekki talin
þörf á annarri mælingu í janúar 1997.
Einnig réði óneitanlega miklu í þessari
ákvörðun að engar líkur voru taldar á
því aö veiða mætti allan kvótann sem
úthlutað hafði verið og því væri ekki
þörf á annarri mælingu jafnvel þótt
stærðar- og aldursdreifing loðnunnar
í mælingunni benti til þess að eitt-
hvað vantaði í hana.
Veiðarnar á vertíðinni
1996/1997
Lobnuveiðar íslensku skipanna á sum-
arvertíð 1996 hófust í júlíbyrjun djúpt
úti af Norðurlandi í nánd við miblínu
milli íslands, Jan Mayen og Græn-
lands. Veiðarnar gengu vel í júlí djúpt
norður af landinu og varð afli íslenska
flotans tæp 260 þús. tonn og heildar-
aflinn um 480 þús. tonn í júlímánuði.
Ekki kom til svæðalokana vegna
smáloðnu í júlí eins og á undanförn-
um árum. Verulega dró úr veiðum í
ágúst en þó einkum er líða tók á
haustið. Fór þá að bera á smáloðnu í
aflanum, enda færðist veiðin nær
landinu og inn á landgrunnið á hin
hefðbundnu smáloðnusvæði.
Heildaraflinn á sumar - og haust-
vertíðinni varð um 774 þús. tonn og
nam hlutur íslendinga um 474 þús.
tonnum en afli útlendinga var um 300
þús tonn.
Eftir áramótin fundu veiðiskipin
mikið af loðnu djúpt úti af Austfjörð-
um og Suðausturlandi en hún var
mjög dreifð. Alls veiddust tæp 60 þús.
tonn í janúar, þar af um 27 þús tonn í
flotvörpu. Það var ekki fyrr en í
annarri viku febrúar að loðnan gekk
upp að Suöausturlandi og veiðar í nót
hófust af krafti. Þrátt fyrir rysjótt veð-
ur varð febrúaraflinn um 460 þús.
tonn, sem er metveiði í einum mán-
uði. í mars var veðurlag enn erfitt sem
leiddi til þess ab minna fékkst en ella.
Engu að síður varð metveiði á vetrar-
vertíðinni 1997 og fengu íslensku
skipin 775 þús. tonn og erlend skip,
2. mynd. Útbreiðsla og hlutfallsleg rnergð loðnu í okt,- nóv. 1996.
22 ÆGIR