Ægir - 01.07.1997, Qupperneq 37
og gáfu þeir einnig líkan af togskipinu
Guðmundi Péturs ÍS-1. Guðmundur
Steingrímsson, framkvæmdastjóri Skip-
stjórafélags Norðlendinga, flutti skól-
anum kveðju fyrir hönd 35 ára út-
skriftarnema og gáfu þeir skólafélagar
myndarlega upphæð í Kompássjóð
Stýrimannaskólans. Kristján Pálsson,
alþingismaður, talaði fyrir hönd 30 ára
farmanna, sem gáfu málverk eftir
Svein Björnsson. Sigurbjörn Svavars-
son, útgerðarstjóri Granda flutti kveðju
25 ára farmanna og gáfu þeir myndar-
lega upphæð í Komássjóðinn.
Skólameistari þakkaði mikinn hlý-
hug til skólans og sagði að hann sýndi
öllum, svo ekki yrði um villst, hvern
hug sjómannastéttin bæri til Stýri-
mannaskólans í Reykjavík og Sjó-
mannaskólans en húsið hefði verið sér-
staklega vígt og afhent sjómannastétt-
inni á sínum tíma. Síðan kvaddi hann
útskrifaða nemendur og bað þeim vel-
farnaðar. Að venju sá Kvenfélagið Ald-
an, félag eiginkvenna skipstjórnar-
manna í skipstjóra- og stýrimannafé-
laginu Öldunni í Reykjavík um vegleg-
ar kaffiveitingar að loknum skólaslit-
um.
Að sögn Guðjóns Ármanns Eyjólfs-
sonar, skólameistara, hefur m mennta-
málaráðherra síðastliðin tvö ár látið
vinna úr tillögu um a.m.k. þriggja
nefnda um breytingar á skipstjórnar-
náminu og er áformað að breytingarn-
ar taki gildi haustið 1999. Gerð hefur
verið tillaga um tveggja ára fornám
áður en fagnámið hefst. í síðasta skipti
nú í haust eru nemendur teknir inn í
skólann eftir eldra kerfi. Með sjávarút-
vegsbrautum við sjö framhaldsskóla
víðs vegar um landið er unnt að veita
fleirum tækifæri til þess að hefja skip-
stjórnarnámiö. Nám á sjávarútvegs-
braut er einnig hugsað sem alhliða
undirbúningur undir nám i sjávarút-
vegsfræðum. Það er samtals 68 náms-
einingar, 46 í almennum greinum og
22 einingar í sérgreinum, þar á meðal
er nám til 390 rúmlesta skipstjórnar-
prófs, nám í haffræði, sjávarútvegi,
fiskmeðferð og vinnslu. Námið verður
metið til stúdentsprófs.
Líkan af kúttemum Sop-
hie Wheatly RE-20.
Síðasta sjóferð Sophie
Wheatly RE-20
Um leið og Stýrimannaskólanum í
Reykjavík var slitið færðu 40 ára
prófsveinar farmannadeildar skól-
ans honum líkan af kútternum
Sophie Wheatly RE-20. Saga þessa
þilskips fékk snöggan endi í hörm-
ungaóveðrinu 6.-7. apríl árið 1906
en þá fórust þrjú skip við landið
með samtals 68 mönnum.
Líkanið af Sophie Wheatly gerði
Grímur Karlsson og í samantekt hans
segir að upphaflega hafj Sophie verið
trúboðsskip en skipið var smíðað í
Englandi árið 1887. Árið 1902 eign-
aðist Jafet E. Ólafsson skipið og með-
eigendur hans frá 1905 voru frú Mar-
grét Th. Jensen og Guðlaugur Torfa-
son í Reykjavík.
Þann 7. apríl fórust þrjú þilskip í
Faxaflóa í miklu ofsaveðri. Þetta voru
Kútter Emilie, sem fórst við Mýrar
með 24 manna áhöfn, Kútter Ingvar
sem fórst á Skerjunum milli Viðeyjar
og lands með 20 manna áhöfn og
Kútter Sophie Wheatly sem fórst
einnig við Mýrar með 24 manna
áhöfn.
Með kútter sínum fórst Jafet Ólafs-
son. Hann hóf sjómennsku á barns-
aldri á opnum skipum og árið 1894
var hann á þilskipum. Eftir nám í
Stýrimannaskólanum varð hann
stýrimaður í eitt ár en skipstjóri síð-
an til dauðadags. Hann fórst aðeins
33 ára að aldri. Jafet þótti ágætur sjó-
maður og skipstjóri, skjótráður og
fylginn sér en aflamaður í besta lagi.
Hann var einn þeirra sem stofnuðu
útgerðarfélagið Alliance en ekki
auðnaðist honum að sjá félagið kom-
ast á verulega á legg því fyrsti togari
félagsins, Jón forseti, kom ekki til
landsins fyrr en eftir slysin á Faxa-
flóa.
Það síðasta sem sást til Sophie
Wheatly var úti fyrir Njarðvíkum en
skipið hélt sjó milli Gerðahólma og
Njarðvíkur. Allir Njarðvíkingar fylgd-
ust með enda skipstjórinn þaðan
ættaður og margir vinir og vanda-
menn um borð. Skipið sigldi síðast
út með landi með klossrifuð öll segl
en eftir að myrkur og hríðarél skall á
sást ekki til skipsins. Síöar kom frétt-
in um að Sophie hefði farist uppi á
Mýrum.
ÆGIR 37