Ægir - 01.07.1997, Side 45
farshúsið bakborðsmegin og aftast er
skutrenna fyrir flottroll. Yfir afturbrún
skutrennu er toggálgi.
Bakkaþilfar: Á bakka er hífinga-
mastur (gilsamastur) og akkerisvinda.
Bakkaþilfarið er yfirbyggt og í því rými
eru geymslur og aðstaða fyrir áhöfn,
m.a. er þar kaffistofa og salerni.
Vélabúnaður
Framdrifts- og orkuframleibslukerfi:
Aðalvél skipsins er frá Wartsilá Wick-
mann diesel A/S árgerð 1988, 12
strokka meb forþjöppu og eftirkæl-
ingu, sem tengist niðurfærslugír frá
Tacke og skiptiskrúfubúnaði frá Wich-
mann.
Á framaflúttak aðalvélar tengist
deiligír frá Hytek af gerðinni FGC
1300 TB-2HC með úttök fyrir vökva-
þrýstidælur þilfarsvinda. Hámarks af-
köst eru 1090 hö við 420 sn/mín. Þá
er snúningshraði vökvadæla 1600
sn/mín.
í skipinu em fimm hjálparvélar frá
Caterpillar. Tvær hjálparvélar knýja
hliðarskrúfur beint um snekkjudrif en
hinar þrjár tengjast Stamford rib-
straumsrafölum fyrir raforkufram-
leiðslu skipsins.
Tvær vélar eru af gerö 3408 TA, 216
KW (295 hö) við 1500 sn/mín, og
knýr hvor þeirra 240 KVA rafala af
gerðinni MC 5346, 3 x 380 V, 50 Hz.
Önnur vélin er framskips en hin í
vélarúmi. Þriðja ljósavélin, er af gerð
3412, 624 hö við 1500 sn/mín og knýr
hún rafala af gerð MC 634B, 510 KVA
3 x 380 V, 50 Hz. Hún er í vélarrúmi.
Stýrisbúnaður: Stýrisvél er rafstýrð
og vökvaknúin frá Tenfjord af gerð 9M
240/2GM-430. Stýrið er frá Becker og
skipið er búið tveimur Brunvoll hliðar-
skrúfum sem eru knúnar beint, hvor
með sinni Catepillar dieselvél af gerð-
inni 3412TA sem hvor er 605 hö við
1800 o/mín.
Vélakerfi dieselvéla: Fyrir brennslu-
olíu- og smurolíukerfið eru þrjár skil-
vindur frá ALFA-LAVAL. Fyrir brennslu-
olíu; MABX-205TGT-24 og MAB-103B-
24. Fyrir smurolíu, ein MAB-104B-24.
Ræsiloftþjöppur em tvær frá
SPERRE sem afkasta 800 1/mín hvor
við 30 bara þrýsting.
Rafkerfi: Rafkerfi skipsins er 380 V
riöstraumur fyrir mótora og stærri
notendur, en 220 V ribstraumur til
ljósa og almennra nota í íbúöum. Fyrir
220 V kerfið em tveir 225A spennar,
380/220 V. Unnt er að samkeyra ljósa-
vélarnar og í skipinu er 3 x 220 V
landtenging.
Ýmis skipskerfi: Austurskilja er frá
Heli-Sep sem afkastar 1,0 m3/klst. Fyr-
ir geyma er tankmælikerfi frá Sound-
fast, gerð 822-302. Slökkvikerfi fyrir
vélarúm er af Halon gerð.
Kerfi fyrir vistarverur: íbúðir em
hitaðar upp með rafmagnsofnum og
loftræstar með rafdrifnum blásurum.
Fyrir hreinlætiskerfi er ferskvatns-
þrýstikerfi frá Hydrofor meb 400 lítra
kút.
Vökvaþrýstikerfi: Fyrir togvindur
er vökvaþrýstikerfi frá KARMOY og
RAPP. Vökvaþrýstikerfin
vinna á þrýsting sem er
150 - 180 bör og fá orku
sína frá aflúttaki aðalvélar
eða frá sérstökum rafmót-
orum.
Véldrifnar vökvadælurnar
eru tvær frá Vickers, gerð
4535SVOH-60A-38
spjaldadælur, sem hvor af-
kastar 275 1/mín við 1500
sn/mín.
Auk þess em tvær rafknún-
ar vökvadælur frá Vickers,
spjaldadælur af gerðinni
45VQ60A sem afkasta 275
1/mín hvor við 1500
sn/mín frá 90 KW raf-
magnsmótorum.
Önnur vökvaþrýstikerfi: Þilfar-
skraninn er frá Triplex 39,0 og er
tonnmetrar, gerð KN-50/3-0195/-
35130. Frá Triplex er nótablökkin,
gerð 603/360 og nótaleggjari af gerð-
inni NK 3000. Vökvamótor fyrir þessi
kerfi er drifin af 90 KW rafmótor.
Kapalvindur em tvær. Ein Brattvaag
kapalvinda, gerð UG16S með 16 hö
rafmótor og Rapp kapalvinda SOW-
300L/2500, knúin af 25 hö mótor.
Vökvakerfið í skipinu er umfangs-
mikið og samkeyranlegt, hvort sem er
með dælum frá aflúttaki aðlavélar eða
vökvadælum sem drifnar eru með raf-
mótomm. Alls eru um sex rafdrifnar
dælur að velja fyrir hin ýmsu vökva-
kerfi.
Kælikerfi og frystikerfi: Fyrir sjó-
kælilestar og frystilest em tvær skrúfu-
þjöppur frá Hovden og ein stimpil-
þjappa frá Gresen. Þjöppurnar eru
Tæknilegar stærbir togvinda (hvor vinda)
Víramagn á tromlu 3000 m
Togátak á miðja tromlu 50 tonn
Vökvaþrýstimótor STAFFA
Afköst mótors 190 hö.
Þrýstingur 150-170 bör
Olíustreymi 552 1/mín
ÆGIR 45