Ægir - 01.10.1997, Side 29
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
A. Bjarnason íHafnarfirði tekur við nýju umboði:
Castrol olíur inn á
markaðinn að nýju
gleyma að smyrja þannig að það er
rekstraröryggi af því að vera með sjálf-
virkni á þessum viðhaldsþætti vél-
anna," segir Ásgeir.
Hann segir að því miður sé ekki
nógu algengt að sett séu upp
smurkerfi á vélar en hann segist ekki
telja að kostnaður við búnaðinn sé af
þeirri stærðargráðu að menn eigi að
TJyrírtœkið Á. Bjamasoti íHafnar-
-T firði liefur tekið við imiboði fyrir
hitiar þekktu bresku Castrol olíuvör-
ur sem eru meðal þekktustu olíuvara
í heiminum. Á árum áður höfðu þess-
ar vörur sterka markaðsstöðu á ís-
landi en Ásgeir Bjarnason, fram-
kvœmdastjóri Á. Bjarnasonar, segir
að markaðssetningin liafi verið í lœgð
um nokkurn tíma en markmiðið sé
að ná fótfestu með Castrol á nýjan
leik, ekki hvað síst í skipaflotanum.
„Castrol nær í raun yfir allt sviðið,
framleiðir feiti, gír- og mótorolíur,
hvort heldur er fyrir bíla, báta eða
stærstu skip, einnig frystivéla- og
loftpressuolíur og margskonar skurðar-
og kæliolíur sem notaðar eru í málm-
iðnaðinum. Það nýjasta á þessu sviði
er Castrol TLX sem er mótorolía fyrir
skipavélar og Marine DFM bætiefni
fyrir dieselolíur en DFM er
skammstöfun á Diesel Fuel Manage-
ment. Til að mynda hefur Castrol um
60% af málmiðnaðarmarkaðnum í
Danmörku þannig að þetta eru góðar
vörur," segir Ásgeir.
„Það nýjasta á þessu sviði er Castrol
TLX sem er mótorolía fyrir skipavélar
og Marine DFM bætiefni fyrir
dieseleolíur en DFM er skammstöfun á
Diesel Fuel Management.
„Við tókum við umboðinu fyrir
Castrol í haust og fyrsta kastið komum
við til með að leggja áhersluna á þau
svið sem við þekkjum hvað best til,
þ.e. í rækju- og frystiiðnaðinum. Tím-
inn leiðir svo í ljós hvernig gengur en
hvað verð snertir þá tel ég okkur vera
að bjóða sambærilegt verð og skipin
eru að fá annars staðar. Og gæðin eru
til staðar, það sýnir bara hversu þekkt-
Ásgeir Bjarnason, framkvœmdastjóri Á. Bjamasonar.
ar þessar olíur eru í skipum erlendis,"
segir Ásgeir.
Umboðið fyrir Castrol olíurnar
kemur í beinu framhaldi af verkefnum
á sviði smurtækni sem Á. Bjarnason
hefur í vaxandi mæli sinnt á undan-
förnum árum. Á því sviði hefur fyrir-
tækið selt sjálfvirk smurkerfi og sjálf-
virka smurskammtara. Ásgeir segir að í
fæstum tilfellum séu vélar framleiddar
með sjálfvirkum smurkerfum en góð
kerfi eru ekki hvað síst mikilvæg í
sjávarútvegsfyrirtækjunum og í frysti-
togurunum þar sem erfitt getur verið
að komast að til að sinna þessum
nauðsynlega viðhaldsþætti.
„Það kemur fyrir að við erum kall-
aðir til að setja niður smurkerfi á ný
tæki þegar þau eru sett upp en algeng-
ast er þó að ráðist sé í að setja upp
sjálfvirkt smurkerfi þegar eitthvað
hefur komið uppá. Maður hefur oft
séð stórtjón hljótast af því að menn
setja hann fyrir sig.
„Eftir því sem vélarnar eru með
fleiri smurfleti þeim mun ódýrara er
kerfið hlutfallslega. Ef við tökum bara
sem dæmi Baader karfavél þá er hún
með á annað hundrað smurkoppa
þannig að tíma- og viðhaldssparnaður
er mikill af sjálfvirku smurkerfi á svo-
leiðis vél," segir Ásgeir.
Eins og áður var vikið að hefur Á.
Bjarnason mikla reynslu af rækjuiðn-
aðinum en fyrirtækið hefur selt
Laitram búnað og fyrir rúmu ári komu
á markaðinn nýir rækjuflokkarar sem
settir hafa verið upp hjá rækjuvinnslu
FH á Kópaskeri og hjá Söltunarfélagi
Dalvíkur.
„Þessir flokkarar hafa komið mjög
vel út í flokkun en þeir eru ekki með
hristibúnað sem aðrar vélar eru með.
Menn eru því að losna við allan titring
og hávaða og fá betri meðferð á hrá-
efnið.
Æcm 29