Ægir - 01.04.2000, Page 11
FRÉTTIR
Samtak:
Tvær nýjar gerðir af Vikingum
Tvær nýjar gerðir af Víking fiskibátum
eru nú að koma fram á sjónarsviðið hjá
Samtaki í Hafnarfirði. Annars vegar er
um að ræða bát sem getur verið á stærð-
arbilinu 11,99-15 metrar og hins vegar er
dekkaður fiskibátur sem er 9,7 metrar að
lengd og er hugsaður fyrir krókakerfið.
Haukur Sveinbjarnarson, eigandi Sam-
taks, segir stærri bátinn til kominn vegna
smíði fyrirtækisins á ferju fyrir Isafjörð en
mótið af þeim bát var þannig hannað að
það nýttist einnig til framleiðsu á fiski-
bátum.
„Báturinn er hugsaður fyrir þá sem hafa
góða kvótastöðu og þurfa á öflugri bátum
að haida," segir Haukur en líklegt er að þrír
bátar af þessari stærð verði smíðaðir í ár.
Nýr fyrir krókakerfið
Krókakerfisbáturinn nýi er 5,99 tonn og
er reiknað með fyrstu afhendingu í ágúst-
mánuði. Haukur segir að á sínum tíma
hafi Samtak smíðað Víking 800 sem op-
inn fiskibát en eftir að báturinn var dekk-
aður minnkaði rúmlestatalan. Hún skilar
sér til baka í nýja bátnum og auk þess
býður báturinn upp á marga aðra kosti
sem eru eftirsóttir.
„Við erum þessa stundina með bátinn í
skapalóni en smíðum síðan mótið og þar
á eftir hefst framleiðslan á skrokkunum.
Pantanir eru nú þegar margar og við
finnum að þeir sem hafa áður átt minni
Víking báta vilja endurnýja í sömu gerð,
enda líkar þeim það bátslag sem við not-
um. Einkenni okkar hjá Samtaki er að
halda allri hönnun innan dyra hjá okkur
og þannig náum við fram okkar sérein-
kennum í framleiðsiunni," segir Haukur.
Ijósm. Sverrír Jónasson
Unnið að bátasmíði hjá Samtaki.
Sjómenn og útgerðarmenn athugið!
Rekum uppboðsmarkaði í öllum höfnum Snæfellssness.
Útvegum löndun, ís og umbúðir.
Eigum ávallt fyrirliggjandi flestar tegundir beitu s.s. síld, smokkfisk, kúffisk,
gerfibeitu(ýsubeitu), loðnu og fljótlega einnig frosið síli.
Einnig seljum við ýmsar rekstrarvörur t.d. ábót, baujur og belgi.
Ávallt til þjónustu reiðubúnir.
m w
:ISKMARKAÐUR BREIÐAFJARÐAR
Sími: Arnarstapi 435 6111 • Rif 436 6971 • Ólafsvík 436 1646,436 1647 • Grundarfjörður 438 6971 • Stykkishólmur 438 1646
Fax: 435 6797 436 6972 436 1648 438 6972 438 1647
GSM 896 47461893 6846