Ægir

Volume

Ægir - 01.04.2000, Page 17

Ægir - 01.04.2000, Page 17
SMABATAUTGERÐ Spurning um frelsi - austfirskir smábátasjómenn i þremur ættliðum segja sögur af sjónum „Auðvitað gleður mig að sjá son minn og sonarson leggja sjó- mennskuna fyrir sig. Ég hvorki vil né get dæmt um hvort þeir hafi eitthvað lært af mér, en ég tel þá þó vera nokkuð útsjónarsama sjó- menn, fískna og glögga á veður,“ segir Sigurður Jónsson á Djúpa- vogi, sem hefur fengist við sjómennsku síðustu 53 árin. Sagt er að fjórðungi bregði til fósturs. Þráinn sonur Sigurðar fæst einnig við sjó- mennsku og útgerð frá Djúpavogi og frá Hornafirði rær Unnsteinn sonur Þráins. Ægir fékk að kynna sér sögu þessarar sjó- mannsfjölskyldu að austan og ræddi við sögupersónur. „Á skakinu er hún lagin við þorskinn" Sigurður Jónsson er fæddur á Norðfirði árið 1925. „Það snérist allt um sjóinn heima á Norðfirði. Ef strákar fóru ekki að róa voru þeir fegnir í að beita, stokka línu eða í önnur slík störf," segir Sigurður, sem fór fyrst til sjós þrettán ára gamall. Þá voru helstu fiskimið sjómanna frá Norðfirði út af Glettinganesi, í svo- nefndri Kistu. Var róið þangað hvenær sem færi gafst, en stærstu bátar Norðfirð- inga á þessum tíma voru um 25 tonn. Árið 1947 fluttist Sigurður frá Norðfirði til Djúpavogs þegar hann kynntist konu sinni, Huldu Kristófersdóttur, sem er þaðan. Æ síðan hefur Sigurður stundað útgerð frá Djúpavogi. Lengi var hann með 30 tonna bát netabát, en 1970 eign- aðist hann 9 tonna Bátalónsbát, Glað SU 97, sem hann átti um tuttugu ára skeið. Nú á hann annan bát með sama nafni sem er níu tonn að stærð og róa þau Hulda gjarnan saman. „Við erum mikið á netum hér í Berufirði og talsvert á línu einnig. Já, Hulda er laginn sjómaður ,“ segir Sig- urður. „En nú held ég að ég fari að hætta þessu,“ segir Sigurður, 74ra ára gamall, um sjómennsku sína. Og þó. Hann segir sjómennskuna líf sitt og yndi og alltaf fari það svo á endanum að þegar hann hafi verið um einhvern tíma í landi fari hug- urinn aftur að leita út á sjó. Utiveran heillar og ekki síst veiðimennskan. - En mikil er breytingin sem orðið hefur á fiskigengd fyrir austan, að mati Sigurðar. Hann minnist þeirra sælu tíma þegar rækja veiddist á Berufirði og hægt var að gera út á hana eða á skarkolaveiðar með snurvoð á sömu miðum. „Nú höfum við bara þorsk hér í Berufirði og mér finnst þetta vera frekar tregt hjá okkur á þessum fimm bátum sem þetta stundum," segir hann. Sjálfs síns herra „Fyrir mér er smábátasjómennska ekki síst spurning um frelsi. Að geta veri sjálfs síns herra," segir Þráinn Sigurðsson. Hann er fæddur árið 1948 og stundaði lengi vörubílaakstur og síðar búskap um fjórtán ára skeið á bænum Tjörn á Mýr- Ijósmyndir Magnús Sigurðsson Sigurður Jónsson, ásamt syni sinum Þráni og sonarsyninum Unnsteini. Allir smábátasjómenn og una sér vel i þvi starfi. SERHÆFING ER OKKAR FAG ! ÁLHLIÐÁ BILÁ OG BÁTABÓLSTRUN BÁTÁDÝNUR STÓLAR OG ÁKLÆÐAVIÐGLRÐIR bM og báiabúlstrun L rlyngásí 10 Garóabæ S.5654772 emaU:Jkg@lsholl.ls 17

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.