Ægir - 01.04.2000, Síða 18
„Gott að geta verið sjálfs síns herra,"
segir Þráinn.
„Hef alltaf haft gaman af veiðiskap,"
segir Unnsteinn.
Sigurður með eiginkonu sinni, Huldu Kristófersdóttur.
„Hún er laginn sjómaður," segir Sigurður.
um í Austur-Skaftafellsýslu. Árið 1984
fluttist hann aftur á Djúpavog og afréð
fjórum árum síðar að fara út í útgerð til
þess að tryggja betur afkomu sína og lífs-
viðurværi, enda farið að þrengjast um í
akstrinum. Hann keypti fyrst Sómabát af
gerðinni 800 og nefndi Birnu SU. Það er
kvótabátur, sem hefur 60 tonna kvóta.
Svo á hann annan bát til, Emelí SU, af
sömu stærð og gerð og sá bátur er gerður
út í dagakerfmu. Á þessum tveimur bát-
um sækir Þráinn á handfærum og línu á
miðin og er oftast einn á bátnum.
Aðspurður segir Þráinn að það hafi
sjálfsagt haft áhrif í sínu tilviki að faðir
hans var og er sjómaður. „Maður var oft
að veltast með honum sem strákur," seg-
ir Þráinn. „Það kom mér svo sem ekki á
óvart að Unnsteinn skyldi fara út í þetta
sama,“ segir Þráinn um sjómannsferil
sonar síns. „Eg held að stráknum hafi tek-
ist að standa nokkuð vel að sínum málum
og það er alltaf gaman að sjá þegar svo
tekst til hjá ungum mönnum. Hitt veit
ég að sjómennska og útgerð er ekki fyrir
alla, það þarf úthald í þetta.“
Síst erfiðara að byrja i dag
Þráinn nefnir að á fyrstu árum sínum í út-
gerðinni hafa smábátaveiðarnar verið
frjálsar án neinna takmarkana. Árin 1989
og 1990 voru svo viðmiðunarár áður en
kvótakerfið var innleitt í greinina árið
1991. „I upphafi gildisdaga kerfisins
fékk ég 80 tonnum úthlutað, en næstu ár
á eftir var kvótinn skertur í tröppugangi
niður á við, ár frá ári. Fór alveg niður í 30
tonn þegar mest var. Á þessum árum
heyrðist hins vegar ekki stuna um rang-
læti þó mikil væri skerðingin, en hávært
er sungið í dag þegar kvótinn er aukinn
aftur,“ segir Þráinn, sem í dag fiefur 60
tonn skráð á Birnu SU. Hann segir kvóta-
stöðuna vera góða og eðlileg hagræðing í
greininni hafi skapað traustan rekstrar-
grundvöll. Um kaupin á bátnum Emelí
árið 1995 segir Þráinn hins vegar að þau
hafi komið til vegna skerðingar á kvóta
og eins hafi til að tryggja betur afkomu
sína.
„Að mínum dómi er síst erfiðara fyrir
unga menn að hefja útgerð í dag en var til
Höfum ávallt mjög mikið úrval skipa og báta
á skrá af öllum stœrðum og gerðum. Önnumst
einnig kvótasölu. Söluskrá okkar er á bls. 621
í textavarpinu.
Á skipasölunni starfa aðilar með mikla reynslu
af sjávarútvegi síðustu áratugi og lögmaður
er ávallt til staðar.
• Komið og fáið söluskrá, alltaf heitt á könnunni.
SklPAMIÐLUNIN
Ðátar & Kvóti
Síðumúla 33. Reykjavík
• Sími: 568 3330
• Fax: 568 3331
• skip@vortex.is
18