Ægir - 01.04.2000, Side 19
dæmis þegar pabbi var að byrja að hasla
sér völl í þessu fyrir fimmtíu árum síðan.
Kvótakerfið skapar traustan grundvöll í
þessari grein og kvótinn er veðhæfur. Því
standa bankar opnir þeim sem áhuga hafa
á að reyna fyrir sér í útgerð. Ef dæmið
gengið ekki upp geta menn alltaf losað
sig út úr þessu,“ segir Þráinn ennfremur.
Veiðiskapur er skemmtilegur
Þegar Unnsteinn Þráinsson var að alast
upp sem strákur á Tjörn á Mýrum var
veiðiskapur í ám og tjörnum hans helsta
gaman. Enda var og er silungur í hverri á
og tjörn á þessum slóðum. „Eg hugleiddi
stundum að verða bóndi, en síðan leiddi
hvað af öðru og ég varð sjómaður.
Kannski vegna þess að ég hef gaman af
veiðiskap og sá einnig að í þessu starfi
ætti ég kost á þvf að lifa af honum," seg-
ir Unnsteinn, sem fæddur er 1969-
Fjórtán ára gamall var hann um tíma á
bátnum með Sigurði afa sínum og segir
það hafa verið mikinn lærdóm. Afi sinn
sé laginn og séður sjómaður, jafnlyndið
einstakt og Berufjörðinn og allar aðstæð-
ur þar þekki hann nánast eins og lófann á
sér. Árið 1988 fór Unnsteinn að stunda
sjómennsku, fyrst með föður sínum - en
árið 1990 fjárfesti hann í eigin bát, Evu
SU 197, fimm tonna plastbát. Hefur
hann reyndar nýlega pantað nýjan bát hjá
Trefjum hf. í Hafnarfirði, 5,9 tonna, sem
er hámarksstræð báta sem eru í afla-
markskerfinu.
Unnsteinn flutti sig frá Djúpavogi til
Hafnar í Hornafirði fyrir fimm árum. Þá
var orðið tregara um veiði við Djúpavog
..en síðan líka hitt að mig langaði alltaf
að flytjast á mínar æskuslóðir á Höfn,“
segir Unnsteinn sem rær nú, fjórðu vor-
vertíðina í röð, frá Þorlákshöfn. Það gerir
reyndar allstór hópur sjómanna frá
Hornafirði um þessar mundir - og búa
þeir í einskonar verbúð í Hlíðardalsskóla,
aflögðum heimavistarskóla aðventista
sem er nokkra kílómetra ofan við Þor-
lákshöfn. „Það er gott samfélag sjómanna
sem heldur þarna til - og reyndar byggist
þetta allt á því að brauðstritið sé
skemmtilegt. Ella væri ég ekki í útgerð."
Fjórði ættliðurinn
Að mati Unnsteins er bjart framundan í
smábátaútgerð á Islandi. „Þetta er þó
undirorpið því að þorskaflahámarkið
verði ekki opnað, það er að menn geti
ekki farið að selja kvóta úr því í aðra
flokka, svo sem togaraútgerðina.
Obreytt fyrirkomulag leiðir til lægra
verðs á aflaheimildum og þar með er bet-
ur opinn sá möguleiki að ungir menn
komist inn í þetta. Sem er ekkert svo
óraunhæft, nú þegar auðvelt er að fá láns-
fé til hverskonar atvinnustarfsemi. Þó
verð ég að segja að erfiðara er að hefja út-
gerð í dag en var þegar ég fór af stað því
aflaheimildirnar eru orðnar mun dýrari,"
segir hann.
Hvorki Sigurður, Þráinn né Unnsteinn
neita því ekki að sjómennsku og afla-
brögð beri stundum á góma þegar þeir
hittast allir þrír á góðri stundu, án þess
þó að fjölskylduboð verði eins og umræð-
ur á fiskiþingi. „Það er oft verið að spek-
úlera í hlutunum," segir Þráinn.
- En hvað með fjórða ættliðinn?
Unnsteinn segir að sonur sinn, Hólmar
Hallur, sem er tíu ára gamall, hafi einu
sinni farið með sér í róður, þá sex ára
gamall þegar haldið var út á Berufjörð.
„Nei, ég ætla ekki að ýta neinu að honum
í þessum efnum. Hann verður að finna
það upp hjá sjálfum sér ef hann ætlar að
verða fjórði ættliðurinn í þessu."
Aflinn á Leið í lestina hjá Sigurði
HJÁ OKKUR FÆRÐU AÐEINS BESTU VÉLAR
TÆKI...
LISTER
PETTER
icók'
MORSE
ep€DROLLO'
MASTER
aquadrive
Heimsþekkt
vörumerki
Cummins er stærsti framleiðandi
dísilvéla yfit 200 hö í heimi!
Ánanaust 1, Reykjavík. Sími 552 6122. Veffang: http://www.velasalan.is
Cummins dísilvélar
mmm-Bmm-Þmmsm
19