Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2000, Blaðsíða 20

Ægir - 01.04.2000, Blaðsíða 20
SMÁBÁTAÚTGERÐ Tveggja báta maður - spjallað við Theódór Erlingsson, 29 ára útgerðarmann „í raun kom af sjálfu sér að ég yrði sjómaður, enda standa þeir að mér í öllum ættum,“ segir Theódór Erlingsson útgerðarmaður í Hafnarfirði. Hann er ættaður frá Tálknafirði og ólst þar upp en flutti fimmtán ára gamall suður yfir heiðar. Útgerð eigin báts hóf hann árið 1990, þegar skall á kennaraverkfall í framhalds- skólunum en vorið 1990 sleit hann end- anlega frá námi og síðan varð ekki aftur snúið. I dag gerir Theódór út tvo 6 tonna báta, aflahámarksbát og annan sem gerð- ur er út í sóknardagakerfinu. Aðgengið er erfitt „Það eru sjálfsagt ekki margir ungir menn sem leggja smábátaútgerð fyrir sig. Þeir eru til, nokkrir eru fyrir vestan, en færri erum við hér á suðvesturhorninu," segir Thedór. Hann þvertekur þó fyrir að fordómar ríki gagnvart mönnum sem leggi þetta fyrir sig, þótt smábátasjó- mennska sé beinlínis ekki í tísku. Fyrstu ár sín í útgerðinni sótti Theódór aðeins sjóinn yfir sumartímann og þá frá heimaslóðum sínum á Tálknafirði. Fyrir tveimur árum gerði hann þetta hins veg- ar að heilsársstarfi og rær í dag frá Hafn- arfirði yfir vetrartímann en frá Vestfjörð- um á sumrin. Um aðgengi ungra manna að útgerð í dag segir Theódór það vissulega vera erfitt. Að sönnu sé stór biti að kaupa fimm tonna bát í aflamarkskerfinu með 100 tonna veiðiheimild, enda slík fjárfesting aldrei innan við 70 milljónir króna. Hann segir banka vera tregari til útlána en fyr- ir til dæmis ári síðan, nú sé hægt að fá í mesta lagi helming þessarar upphæðar lánaða. Áður hefði allt að 80% upphæð- arinnar fengist að láni. „Þetta hafa bankarnir gert til að slá á þensluna. Síðan er náttúrlega annað mál í þessu að vextirnir eru djöfullegir, það er mjög erfitt að standa undir 15% skulda- bréfavöxtum, hvað þá ef farið er í enn meiri fjárfestingu, til dæmis kaup á 30 tonna aflamarksbát. Þá erum við að tala um 2-300 milljónir króna. I slíkum til- fellum er ég hæddur um að miðað við Ijósm. Sverrir Jónasson Theódór Erlingsson. lánakjörin finnum við ábatasamari fjár- festingu en útgerð." Aðstæður fljótar að breytast Strax upp úr mánaðamótum apríl og maí ætlar Theódór að vera kominn á sjóinn fyrir vestan og sem fyrr mun hann gera út frá Tálknafirði. Sjálfur mun hann róa á Margréti BA, en mun hafa menn fyrir sig á hinum bát sínum. „Við verðum sjálfsagt eina þrjá mánuði í þessu úthaldi fyrir vestan. Hins vegar þýðir voðalega lítið að vera að spyrja mig að þessu núna, aðstæður í útgerðinni eru svo fljótar að breytast. Lögum um smá- bátaútgerð hefur verið breytt á hverju ári síðan ég byrjaði í þessu fyrir tíu árum og aðrar vendingar í þessu eru alveg í sam- ræmi við það. Þess vegna gæti ég verið hættur í útgerð þegar blaðið kemur úr!“ EINHOLTI 6 • BOX 3107 - 105 REYKJAVÍK

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.