Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2000, Blaðsíða 24

Ægir - 01.04.2000, Blaðsíða 24
BÁTASMÍÐI Óskar Guómundsson, framkvæmdastjóri Bátasmiðju Guðmundar, við nýjan Sómabát sem bíður þess að verða afhentur nýjum eiganda sínum. Bátasmíðja Guðmundar: Fyrirsjáanleg verkefni ár fram í tímann - nýr Sómi 960 eftirsóttur „Það verður að viðurkennast að það er mjög líflegt í bátasmíðinni þessa stundina og hjá okkur eru fyrirsjáanleg verkefni eitt ár fram í tímann í smíði Sómabátanna,“ segir Óskar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfírði. Að jafnaði er afhentur hjá fyrirtækinu einn bátur á mánuði og að undanförnu hafa verið afhentir bátar af gerðinni Sómi 960, sem er bátur þróaður upp úr Sóma 870. „Þennan bát höfum við haft í þróun um nokkurra ára skeið og tekið eitt og eitt skref í þróuninni í senn. Markmiðið sem við vorum að fikra okkur að var að halda þeim einkennum sem Sómabátarnir hafa, þ.e. að báturinn haldi léttleika sfnum, hraða, sjóhæfni, hagkvæmni í rekstri og lágmarks olíueyðslu, auk þess að vindrek sé í lágmarki. Það er fyrst og fremst hrað- inn sem við höfum verið að elta og við höfum á síðari árum náð þeim árangri að fá bátana til að halda miklum ganghraða þrátt fyrir lestun. Okkar viðmiðun hefur alltaf verið að tómir nái Sómabátarnir 30 mílum en nái lestaðir með t.d. fjórum tonnum að ganga 26 mílur. Þetta er mik- ill munur frá því sem áður var. Þessu er að þakka öflugri vélum, þróaðri skrúfu- búnaði og endurbættri hönnun á skrokk- num,“ segir Óskar en f Sómabátana eru fyrst og fremst notaðar Volvo Penta vélar. Tugir Sómabáta á Hornbanka A síðasta ári var fyrsti Sómabáturinn seld- ur til Noregs og segir Óskar að það hafi verið mikil tímamót að frá Islandi sé seld- ur bátur til lands sem sé jafn þekkt fyrir báta- og skipaframleiðslu og raun ber vitni. Og áfram verður haldið á þeirri braut að selja báta úr landi og þróa og selja á innan- landsmarkaði. Guðmundur segir að Sóminn hafi þegar sannað sig við erfiðar að- stæður í Norður-Noregi og Finnmörku. Báturinn ber nafnið Guðmundur og hefur oft verið eini báturinn á sjó af þessari stærð, verið innan um 30-40 tonna báta og fiskað vel og komið Norðmönnum mjög á óvart. „Með því að fá bátana til að plana með lestun og halda þannig ganghraðanum náum við fram þeim eiginleikum að hægt er að sækja lengra á miðin. Við höfum dæmi um að í fyrrahaust hafi verið 15-20 Sómabátar á Hornbankanum, um 80 míl- ur frá landi. Þetta segir okkur mikið um áhuga okkar kúnnahóps," segir Óskar. „Miðað við hvernig umhverfi smábátaút- gerðarinnar er þá bendir eftirspurnin fyrst og fremst til þess að endurnýjunar- þörfin sé orðin mjög brýn í flotanum. Óvissan í kringum kerfið er mikil þessa dagana en verði frestað gildistöku þeirra lagabreytinga sem ætlað var að kæmu til framkvæmda í haust þá munu margir bíða um sinn með að endurnýja sína báta. Engu að síður sjáum við fram á mikil verkefni á komandi mánuðum og það er vel,“ segir Óskar. Nýi Sóminn efirsóttur Eins og áður segir hefur Bátasmiðja Guðmundar nú þegar afhent nokkra báta af nýrri gerð, þ.e. Sómi 960. Um er að ræða 9,6 metra langan bát sem er lögleg- ur innan krókakerfisins. Óskar við hálfsmíðaðan Sóma. 24

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.