Ægir - 01.04.2000, Page 27
ÆGISVIÐTALIÐ
Keflvíkingur seidur og Dagbjartur keypti vélbátinn
Gullfoss. Upp úr 1950 flutti Dagbjartur með fjöl-
skyldu sinni til Hafnarfjarðar og þar gerði hann út
tvo báta sem báðir báru nafnið Nanna. Um tíma var
Dagbjartur síðan bátlaus en rétt um það bil sem
kvótakerfið kom á keypti hann níu tonna bátinn Kóp
og gerði hann út þar til í fyxra. Dagbjartur segist hafa
komið að nánast öllum veiðiskap sem þekkist hér við
land.
„Eg hugsa að túnfiskveiðar séu það eina sem ég hef
ekki kynnst í sjómennskunni á Islandsmiðum," segir
Dagbjartur.
Okkur er trúað fyrir fiskimiðunum
Dagbjartur segir að það brenni í sífellu á smábátasjó-
mönnum að öll þau kerfi sem búin hafi verið til í
kringum sjósókn hér á landi á síðari árum mismuni
sjómönnum. Sumir hafi leyfi til að róa í 40 daga á ári
- aðrir í 20 og enn aðrir hátt í 300.
„Sumir fá stærri skammt en aðrir úr auðlindinni.
Eg man að þegar ég var á sínum tíma búinn að fá
díselvélina í fyrsta bátinn þá sagði pabbi við mig að
nú yrði ekki aftur snúið með að ég færi í útgerð. Eng-
inn hefði leyfi til að stöðva mig í því að sækja sjóinn
en ég skyldi hafa það hugfast að fara vel með fiski-
miðin sem mér væri trúað fyrir. I dag gilda í raun ná-
kvæmlega sömu lögmál að menn verða allir að ganga
vel um fiskimiðin og auðlindirnar en munurinn er sá
að núna fá sumir meiri rétt en aðrir. Mér finnst að
þessi kerfi séu öll komin úr böndunum og farin að
vinna í öfuga átt,“ segir Dagbjartur og leggur áherslu
á að strandveiðiflotinn sé sá fiskiskipafloti sem státi af
litlum tilkostnaði við veiðar.
„Ef við horfum á erlendar skuldir þessarar þjóðar og
skuldir sem stofnað hefur verið til vegna skipaútgerð-
Lagt að í Þorlákshöfn um 1930. Þau hafa heldur betur tekið
stakkaskiptum islensku skipin siðan þessi mynd var tekin.
ar þá er ég viss um að mjög lítill hluti þeirra er til-
kominn vegna strandveiðiflotans. Af hverju má ekki
fara ofan í saumana á þessum þætti og reikna út hag-
kvæmni í útgerð fyrir þjóðarbúið."
Um borð í Kópi.
„Fyrsta sumarið mitt
var eitt af þeim
bestu hvað
afla snertir."
Göngum hart að lífríkinu
Dagbjartur segir að á stríðsárunum hafi verið mikill
línubátafloti í Keflavík og Sandgerði og netabátafloti
Mótorbáturinn Gullfoss var í eigu Dagbjarts um árabiL.
Tvo báta átti Dagbjartur sem báru nafnió Nanna. Þetta er sú
síðari og „...hörku sjóskip," segir Dagbjartur.
Viötal:
Jóhann Ólafur
Halldórsson
Ljósmyndir:
Sverrir
Jónasson
27